154. löggjafarþing — 130. fundur,  22. júní 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna.

1160. mál
[20:42]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Annað árið í röð stöndum við hér og gerum breytingar vegna þess að við viljum helst ekki fara eftir þeim lögum sem við samþykktum hér árið 2019. Ég verð að gera athugasemdir við hluta af rökstuðningi í greinargerð þar sem segir, með leyfi forseta:

„Með þessari hækkun er gengið fram með góðu fordæmi á tímum hárrar verðbólgu og vaxta.“

Fólk gengur bara fram með góðu fordæmi fyrir eigin hönd. Hér er verið að fella undir hópa sem eru miklu víðtækari en við þjóðkjörnir fulltrúar, þ.e. forseta Íslands, alþingismenn, ráðherra, ráðuneytisstjóra, dómara, saksóknara, lögreglustjóra, seðlabankastjóra, varaseðlabankastjóra og ríkissáttasemjara. Þetta eru að stórum hluta til þeir aðilar sem mestu þykir skipta að séu sjálfstæðar í störfum sínum. Við þekkjum málaferli sem voru í gangi sem dómari leiddi. Mér sýnist málið vera þannig búið að það geti ekki annað gerst en að sambærileg (Forseti hringir.) vinna fari af stað. Ég held að það sé rétt að fækka í þessum hópi sem þarna er undir. (Forseti hringir.) Þingflokkur Miðflokksins mun sitja hjá við afgreiðslu þessa máls.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir hv. þingmenn á ræðutíma í umræðum um atkvæðagreiðslu og í atkvæðaskýringum.)