154. löggjafarþing — 131. fundur,  22. júní 2024.

húsaleigulög.

754. mál
[21:42]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég verð að segja að mér finnst skrýtið að við séum hér á síðustu klukkutímum þingsins að taka inn mál sem er eftir framlagðar breytingartillögur orðið ansi umdeilt, alla vega hvað varðar þá sem eru að vinna að því að tryggja hagsmuni leigjenda í þessum málum. Í byrjun getum við sagt að þegar hæstv. þáverandi innviðaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, lagði fram þetta mál þótti slíkt vera nauðsynlegt, líka að hafa það með þessum hætti gagnvart Skattinum til þess að leigugrunnurinn gæti veitt frekari upplýsingar en Skatturinn gæti gert. Þess vegna væri nauðsynlegt að koma á slíkum grunni gagnvart opinberum aðilum.

Eins og segir í fyrirsögn frumvarpsins heitir það frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, í sviga: húsnæðisöryggi og réttarstaða leigjenda. Í mínum huga er það mergur málsins. Þegar verið var að vinna að undirbúningi þessa máls þá var skipaður starfshópur til að leggja fram hugmyndir eða drög að frumvarpi. Í þessum starfshópi sátu m.a. fulltrúar frá verkalýðshreyfingunni sem hafa í umsögnum lýst mikilvægi þess að til staðar sé þessi leigugrunnur og að skylda beri leigusala til að skrá leigusamninga í þennan leigugrunn.

Ef ég fæ, með leyfi forseta, að nefna nokkur atriði sem koma fram í umsögnum þá langaði mig að byrja á umsögn sem kom frá Hagsmunasamtökum heimilanna þar sem segir að það sé margt jákvætt í þessu og jákvætt að sett séu fram sambærileg skilyrði fyrir uppsögn ótímabundinna leigusamninga og fyrir því að leigjandi eigi ekki forkaupsrétt til áframhaldandi leigu húsnæðis.

„Hingað til hefur verið hægt að segja ótímabundnum leigusamningum upp án sérstakrar ástæðu þannig að leigusali hefur getað gert það hvenær sem honum sýnist. Það er því skref í rétta átt að setja málefnaleg skilyrði fyrir uppsögn ótímabundinna leigusamninga og til þess fallið að auka búsetuöryggi leigjenda.“

Þetta er það jákvæða í þessu. En jafnframt segir:

„Einnig er lagt til að komið verði á almennri skráningarskyldu leigusamninga í gagnagrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar líkt og var gert ráð fyrir í frumvarpi sem var lagt fram á síðasta þingvetri en í meðförum Alþingis var því breytt þannig að skráningarskyldan var takmörkuð við leigusala sem hafa atvinnu af útleigu íbúðarhúsnæðis. Með því að allir leigusamningar verði skráðir í gagnagrunninn má búast við því að betri upplýsingar fáist um leigumarkaðinn sem nýtist við opinbera hagskýrslugerð.“

Síðan langar mig, virðulegur forseti, að nefna aðeins sameiginlega umsögn þriggja aðila, BSRB, BHM og Kennarasambandsins, sem hefst með eftirfarandi orðum:

„BSRB, BHM og Kennarasamband Íslands (hér eftir samtökin) hafa fengið til umsagnar ofangreint frumvarp þar sem lagðar eru til breytingar á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með það að markmiði að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda hér á landi, einkum varðandi langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð, jafnt á samningstíma sem við framlengingu eða endurnýjun leigusamnings.“

Síðan segir um einstakar greinar frumvarpsins í þessari umsögn:

„Með 2. gr. frumvarpsins er leiguskrá húsnæðisgrunns Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar gert hærra undir höfðu með skráningarskyldu leigusamninga.“

Grunninum er gert hærra undir höfði með skráningu. Hann verður betri.

„Eins og segir í frumvarpinu eru áreiðanlegar upplýsingar um markaðsleigu sem byggjast á heildstæðum upplýsingum um allan leigumarkaðinn grundvallarforsenda þess að unnt verði að framkvæma þær breytingar á húsaleigulögum sem lagðar eru til með efni frumvarpsins.“

Þetta er grundvallarforsenda, segir í umsögn, fyrir því að hægt sé að framkvæma þær breytingar sem þarf að gera. Nú er búið að ákveða að taka þetta út og hér er fullyrt að 60% leigusamninga séu skráðir í þennan leigugrunn. Hver veit hvaða samningar eru ekki þarna? Hvernig er hægt að vita það? Ég næ ekki utan um það.

Ég ætla ekki að tefja þetta mál mikið en vil þó segja að þetta er ekki í fyrsta skipti sem er verið að kalla til umsagnaraðila sem leggja fram jákvæðar umsagnir um frumvarp sem er svo breytt eftir á. Inntakið í frumvarpinu er bara orðið allt annað heldur en það var upphaflega. Í þessu máli hefði verið rétt og eðlilegt að hafa tíma eftir að þessar breytingar eru lagðar til til að kalla til umsagnaraðila á nýjan leik. Það lá alveg fyrir að það var mikill skoðanamunur á milli þeirra sem eru að leigja eða þurfa að vera á leigumarkaði og húseigenda sem voru að sjálfsögðu andvígir því að þurfa skrá sig inn í húsaleigugrunn. En með því að búa til þennan húsaleigugrunn erum við að tryggja að fólk hafi upplýsingar um markaðsleigu á húsnæði á markaði sem er mjög erfiður.

Við getum auðvitað verið sammála um það sem hv. þingmaður nefndi hér áðan, að besta leiðin sé að auka framboð á húsnæði og þá verði ekki svona mikið kraðak á markaði eins og er í dag. En á meðan þetta er svona — hér er fólk að leigja 80 m² íbúðir fyrir 400.000 kall. Það er ekkert eftirlit. Verkalýðshreyfingin og fleiri aðilar vildu leigubremsu, þau óskuðu eftir leigubremsu, en niðurstaðan varð sú að búa til þennan húsaleigugrunn til að tryggja þá a.m.k. að fólk hefði einhverjar upplýsingar um húsaleigu. Með því að taka þetta út er verið að taka hryggjarstykkið úr þessu frumvarpi. Frumvarpið er í mínum huga ónýtt þó að það séu nokkur atriði sem gætu gert það að verkum að maður gæti verið á gula takkanum. Að vera að leggja til þetta mál eins og það er núna er í mínum huga algjörlega galið og umsagnaraðilar sem veittu jákvæða umsögn núna eru alls ekki sammála þeim breytingum sem átt hafa sér stað.