154. löggjafarþing — 131. fundur,  22. júní 2024.

húsaleigulög.

754. mál
[21:52]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Staða leigjenda á Íslandi er afleit. Þetta sýna t.d. kannanir Vörðu – rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins trekk í trekk. Við búum við óregluvæddasta leigumarkað hins vestræna heims. Víðast hvar eru reistar miklu sterkari varnir fyrir leigjendur. Afleiðingin af þessu er sú að það ríkir ofboðslegt valdaójafnvægi milli þeirra sem leigja og þeirra sem eiga og eru leigusalar. Það er langt síðan því var lofað, og því var lofað sérstaklega í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, að ráðast í aðgerðir til þess að reyna að leiðrétta upp að einhverju marki þetta valdaójafnvægi og styrkja betur réttarstöðu leigjenda með breytingu á húsaleigulögum. Þegar lífskjarasamningarnir voru gerðir árið 2019 var þar sett inn loforð um sérstaka aðgerð af hálfu stjórnvalda sem er varla hægt að skilja öðruvísi en sem loforð um einhvers konar leigubremsu. Það var aldrei efnt.

Það sem gerðist hins vegar var t.d. að skipaður var starfshópur og í honum sátu fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar, fulltrúar atvinnurekenda og fulltrúar stjórnvalda. Það frumvarp sem hér var lagt fram af hæstv. innviðaráðherra er afrakstur af þeirri vinnu og í þeirri vinnu slógu allir aðilar af sínum kröfum og komust að ákveðinni málamiðlun. Hjá verkalýðshreyfingunni hafði verið vilji fyrir því að ganga lengra, jafnvel með verðstýringu af einhverju tagi, með því að innleiða sérstaka leigubremsu í þágu fólks á leigumarkaði, en hún sló af þessum kröfum gegn því að gerðar yrðu ýmsar samhangandi breytingar á húsaleigulögum sem birtast í þessu frumvarpi eins og það var lagt fram í upphafi. Ég tel að það frumvarp hafi að mestu leyti verið gott og hefði verið til mikilla bóta fyrir leigjendur og ég er ósammála þeim röddum sem halda því fram að þær breytingar sem þar eru lagðar fram séu svo íþyngjandi fyrir leigusala og fasteignaeigendur að þær myndu með nokkrum hætti draga úr framboði á leiguhúsnæði. Það er svo bara annað verkefni og stærra og kannski það mikilvægasta af öllu að ýta undir aukið framboð leiguhúsnæðis en það þýðir ekki að Ísland verði áfram að vera það OECD-ríki sem er með eitthvert veikasta regluverk fyrir leigjendur.

Eins og hv. þm. Guðbrandur Einarsson fór yfir og auðvitað hv. framsögumaður, Líneik Anna Sævarsdóttir, þar á undan er meiri hlutinn búinn að leggja til breytingar sem draga að verulegu leyti tennurnar úr þeim breytingum sem stefnt var að. Ég óttast sérstaklega afnám hinnar almennu skráningarskyldu. Ég held að þetta sé ákveðinn forsendubrestur. Þetta var eitt af því sem þótti mikilvægt, m.a. til þess að fyrir lægju greinargóðar upplýsingar sem hægt væri að byggja á þegar kemur til kasta annarra ákvæða í frumvarpinu og annarra tækja sem er verið að innleiða í þágu fólks á vinnumarkaði og fólks sem stendur höllum fæti.

Þetta er í mínum huga alvarlegur forsendubrestur. Ég hef áhyggjur af þessu. Ég hef áhyggjur af því að hér sé verið svo gott sem að skemma frumvarpið. Eftir standa að vísu mjög mikilvæg ákvæði eins og þau er lúta að því að styrkja forgangsrétt leigjenda. Svo er auðvitað spegilmyndin af því, sem er að sett eru inn í lögin ákveðin skilyrði fyrir uppsögn leigusamnings. Þetta er allt saman til bóta, þetta er mikilvægt og gerir það að verkum að við munum ekki undir nokkrum kringumstæðum fara að þvælast fyrir eða greiða atkvæði gegn þessu frumvarpi. En ég harma að þessar breytingar séu lagðar til af meiri hlutanum, sérstaklega í ljósi þess hver aðdragandi málsins var. Auðvitað getum við í þessu húsi ekki bara afsalað okkur einhvern veginn löggjafarvaldinu til aðila vinnumarkaðarins eða til einhverra starfshópa úti í bæ og verið bundin af því sem þar kemur fram. Það er hins vegar gersamlega óþolandi að trekk í trekk sé verið að gefa aðilum vinnumarkaðarins fyrirheit sem standast ekki og verið að þvæla fólki í gegnum nefndastörf og nefndavinnu sem er svo í raun kollvarpað án þess að færð séu viðhlítandi rök fyrir þeim breytingum sem gerðar eru.

Eftir stendur þetta: Við í Samfylkingunni styðjum ýmsar mikilvægar breytingar sem hér eru lagðar til en við hörmum að þessar breytingar séu lagðar til af meiri hlutanum í velferðarnefnd.