154. löggjafarþing — 131. fundur,  22. júní 2024.

Umhverfis- og orkustofnun.

585. mál
[21:57]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Vilhjálmur Árnason) (S):

Virðulegur forseti. Hér fjöllum við um frumvarp til laga um Umhverfis- og orkustofnun og mæli ég fyrir áliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar. Með frumvarpinu er lagt til að komið verði á fót nýrri Umhverfis- og orkustofnun sem taki við starfsemi Orkustofnunar og hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar.

Frumvarpið er liður í stofnanabreytingum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Breytingarnar miða að einfaldara stofnanakerfi með öflugri vinnustöðum, bættri þjónustu, eflingu þekkingar- og lærdómssamfélags og fjölgun starfa á landsbyggðinni. Frumvarpið byggist á frumathugun sem unnin var í samvinnu við forstöðumenn og starfsfólk stofnana. Athugunin leiddi skýrt í ljós mikla samlegð með verkefnum Orkustofnunar og þeim hluta Umhverfisstofnunar sem lýtur að umhverfis- og loftslagsmálum. Megintilgangur nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar verður að stuðla að því að markmið stjórnvalda um loftslagsmál gangi eftir auk þess að leggja áherslu á sjálfbæra og ábyrga nýtingu auðlinda með náttúruvernd og lágmörkuð umhverfisáhrif að leiðarljósi.

Að mati meiri hlutans mun hin nýja Umhverfis- og orkustofnun vera enn betur í stakk búin til að sinna þeim verkefnum sem nú eru á hendi Umhverfisstofnunar og Orkustofnunar og má þar nefna á sviði hollustuhátta og mengunarvarna, rannsókna, stjórnar vatnamála, náttúruverndar og orkumála. Þá verður stofnunin mikilvæg stoð í þeim krefjandi verkefnum sem Ísland stendur frammi fyrir í umhverfis-, orku- og loftslagsmálum. Með aukinni samþættingu þessara málaflokka verður unnt að sinna þeim með aukinni skilvirkni og hægt verður að byggja aðgerðir í þeim á sterkari gögnum og með betri nýtingu þekkingar.

Þá bendir bendum við í meiri hlutanum á að ný stofnun þeirra málaflokka sem sameinast í eina, verði frumvarpið að lögum, geti átt mikla samlegð með öðrum opinberum stofnunum hvað varðar öflugri vinnustaði, þar sem fleiri en ein stofnun deila húsnæði og stoðþjónustu. Það skili sér í bættri þjónustu við borgarana og eflingu þekkingar- og lærdómssamfélags, til að mynda með fjölgun starfa á sömu starfsstöðinni. Að mati meiri hlutans getur mikil samlegð falist í samvist og samvinnu opinberra stofnana.

Í nefndinni fjölluðum við um þau atriði sem komu fram hjá gestum nefndarinnar og í umsögnum hvað varðar raforkueftirlitið og fjöllum um það nánar í þessu nefndaráliti. Við svörum því einnig hvað verður með eftirlit Umhverfis- og orkustofnunar, sem ætti að vera mun betur í stakk búin sem öflugri stofnun og samþætt, og málefni starfsfólks varðandi réttindi og annað við tilflutninginn. Er komið inn á þetta allt í fyrirliggjandi nefndaráliti sem ég vísa frekar til.