154. löggjafarþing — 131. fundur,  22. júní 2024.

Náttúruverndar- og minjastofnun.

831. mál
[22:01]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Orri Páll Jóhannsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar sem ég bendi á að liggur frammi. Þar höfum við í nefndinni verið að fjalla um, skulum við segja, hinn helminginn af því máli sem var til umræðu hér á undan og hv. þm. Vilhjálmur Árnason gerði ágætlega grein fyrir. Þetta frumvarp fjallar um að koma á fót sérstakri stofnun, svokallaðri Náttúruverndar- og minjastofnun. Í frumvarpinu er lagt til að þarna verði þrjár stofnanir sameinaðar í eina, auk hluta þeirrar fjórðu og það er jú akkúrat hinn hluti þeirrar fjórðu sem er fjallað um í fyrra frumvarpinu sem var farið yfir hér áður.

Þær stofnanir sem um ræðir eiga það sameiginlegt að sinna verkefnum sem lúta að friðlýstum svæðum, náttúruvernd og veiðistjórnun. Þetta eru Vatnajökulsþjóðgarður, þjóðgarðurinn á Þingvöllum, Minjastofnun Íslands og hluti Umhverfisstofnunar. Það var niðurstaða meiri hluta nefndarinnar að að svo komnu máli yrði lagt upp með að sameina einungis tvær af þeim stofnunum sem undir eru í frumvarpinu, þ.e. Vatnajökulsþjóðgarð og hluta Umhverfisstofnunar.

Ætla ég nú, virðulegi forseti, að gera örlitla grein fyrir helstu atriðum sem voru til umfjöllunar í nefndinni sem skýra það e.t.v. betur hvers vegna við leggjum þetta til. Að mati meiri hluta nefndarinnar getur verið margvíslegur ávinningur af því að sameina allar þessar stofnanir í eitt. Þar vil ég nefna sérstaklega, vegna þess að ein tillagan sem við erum með er að sameina ekki þjóðgarðinn á Þingvöllum Vatnajökulsþjóðgarði og þeim hluta Umhverfisstofnunar sem hefur með náttúruverndarhlutann að gera, að vissulega getur falist ákveðin samlegð í því að Þingvallaþjóðgarður, sem sannarlega er náttúruverndarsvæði eins og við þekkjum, sameinist þessari stofnun. En að svo komnu máli gerir nefndin tillögu um að gera breytingar á frumvarpinu þar sem það verði ekki á þessum tímapunkti. Þar er það sérstaða þjóðgarðsins sem endurspeglast í þeim lögum sem um hann gilda en í þeim segir að hið friðlýsta land skuli vera undir vernd Alþingis og ævinleg eign íslensku þjóðarinnar. Í þessu samhengi vill meiri hlutinn hvetja ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála og Alþingi til að skoða tækifærin sem í því geta falist að þjóðgarðurinn á Þingvöllum verði hluti af nýrri stofnun sem fari með umsjón og rekstur friðlýstra svæða á Íslandi.

Í öðru lagi, virðulegi forseti, er hér til umfjöllunar að sameina Minjastofnun Íslands undir þessa nýju sterku stofnun. Það er líka niðurstaða meiri hlutans að í frumvarpinu sé því miður ekki að finna nægilega rík fagleg rök fyrir niðurlagningu Minjastofnunar Íslands og þá sameiningu við aðrar stofnanir. Í því samhengi eru vissulega, eins og í öðru, tækifæri sem geta falist í því að minjaverndin sameinist öðrum atriðum náttúruverndarinnar og verði þá hluti af einhvers konar meiri og breiðari þverfaglegri heild. En meiri hluti nefndarinnar vill halda því til haga að gæta þarf að sérstöðu minjanna og beinir því til ráðherra að taka til nánari skoðunar stöðu minjaverndar, m.a. með hliðsjón af skýrslu sem var unnin síðastliðið haust og ef ég man rétt, virðulegi forseti, þá var það hv. þm. Birgir Þórarinsson sem fór fyrir þeim hópi sem skilaði þessari skýrslu sem fór sérstaklega yfir stöðu minjaverndarinnar. Þar er að mati meiri hlutans alla vega gott efni sem hægt er að horfa til að taka til skoðunar til framtíðar, hvar tækifærin liggja þegar kemur að minjavernd í landinu. Það getur verið með sameiningu Minjastofnunar að hluta eða heild við aðrar stofnanir, jafnvel skyldar stofnanir menningarminjamegin og/eða þá í nýrri stofnun sem lagt er upp með að verði til með nýrri Náttúruverndarstofnun, nái þetta frumvarp fram að ganga. Meiri hlutinn beinir því til ráðherra að taka þetta til frekari skoðunar.

Að endingu og í þriðja lagi langar mig að geta þess sem meiri hluti nefndarinnar ræddi töluvert og kom fram, m.a. í sjónarmiðum þeirra umsagnaraðila sem komu fyrir nefndina, og varðar stjórnfyrirkomulag Vatnajökulsþjóðgarðs. Nú er það svo að við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs, þ.e. samþykkt laganna um Vatnajökulsþjóðgarð árið 2008 að ég hygg, voru ákveðin tímamót í íslenskri náttúruvernd. Þar var lagt upp með allt annars konar stjórnfyrirkomulag heldur en við þekktum og nái þetta frumvarp fram að ganga er að hluta til verið að breyta víðar um land. Frá upphafi var rík áhersla lögð á það að í því sem í dag er kallað stjórn — en nái frumvarpið að ganga heitir það svæðisstjórn — sé breið aðkoma kjörinna fulltrúa á sveitarstjórnarstigi en jafnframt fulltrúa frjálsra félagasamtaka, svo sem umhverfis- og náttúruverndarsamtaka, útivistarsamtaka og ferðaþjónustusamtaka eða ferðamálasamtaka eins og það hefur stundum verið kallað. Í frumvarpinu er lagt til að þessu verði breytt. Nefndin bendir á að í því geti falist ákveðið ójafnvægi ef við fylgjum þessari tillögu. Í grunninn leggur nefndin til að horfið verði frá því og að við höldum áfram með það stjórnfyrirkomulag sem hefur reynst alveg gríðarlega vel í íslenskri náttúruvernd og er að mörgu leyti mikil fyrirmynd sem hægt er að nota víðar á náttúruverndarsvæðum, og teikn þar um.

Undir þetta álit rita, ásamt þeim sem hér stendur, hv. þingmenn Bjarni Jónsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir, með fyrirvara.

Að lokum langar mig að segja, virðulegi forseti: Þó að áformin og hugmyndin hafi verið stór og gaman að skoða hina mismunandi anga hennar þá er þetta, þ.e. nái þetta frumvarp fram að ganga og þá ný stofnun, Náttúruverndarstofnun, sannarlega stórt skref í náttúruvernd á Íslandi. Við erum að taka eina stærstu stofnunina, ef hægt er að segja það um Vatnajökulsþjóðgarð sem tekur yfir 15% af landinu og sinnir því svæði fyrir okkar hönd, sem og yfir 130 friðlýst svæði á Íslandi, þ.m.t. þjóðgarðinn á Snæfellsnesi, og þá er þetta meiri háttar efling náttúruverndar á Íslandi að sameina þetta í eina stofnun. Þekkjandi til í þessum geira veit ég að eftir þessu hefur verið beðið mjög lengi. Einhvern tímann þegar fram í sækir sjást kannski tækifærin í því að bæta Þingvallaþjóðgarði við en það verður ekki að svo komnu máli.

Og af því að hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir vísaði fyrr í dag í mjög ágætri ræðu í þátt Kvennalistans í öðru ótengdu máli þá man ég eftir því, og ég segi þetta að gamni vegna þess að hv. þingmaður situr hér í salnum, að hafa heyrt af því sögur þegar fulltrúar í Kvennalistanum sátu og voru að reyna að raða saman mögulega stofnanaumhverfinu og sjá það fyrir sér. Þá var sýnin akkúrat þessi: Söfnum saman á einn og sama staðinn öllum þeim stofnunum og öllum þeim aðilum sem vinna að náttúruvernd í landinu — svo að ég óska þeim sem áttu þá hugmynd á sínum tíma til hamingju nái þetta frumvarp fram að ganga.