Orkusjóður.
Virðulegi forseti. Við fjöllum um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Orkusjóð sem breytir honum Loftslags- og orkusjóð. Loftslags- og orkusjóði er ætlað að styrkja verkefni sem tengjast orkuskiptum og nýsköpun á sviði loftslagsmála, auk þess sem styrkveitingar ráðuneytisins til verkefna á málefnasviði þess og til innleiðingar á hringrásarhagkerfinu munu falla undir nýjan sameinaðan sjóð. Umsagnaraðilar voru almennt jákvæðir gagnvart sameiningu Orkusjóðs og Loftslagssjóðs í nýjan Loftslags- og orkusjóð sem hefur það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Nýr sjóður verður deildaskiptur samkeppnissjóður og ferli til styrkveitinga einfaldað. Með sameiningu sjóðanna í einn sjóð er stefnt að aukinni hagræðingu og því er mikilvægt að ná fram skilvirkni í daglegum rekstri sjóðsins. Þrátt fyrir að mælt sé fyrir um að dagleg umsýsla sjóðsins verði hjá stjórnsýslustofnun telur meiri hlutinn mikilvægt að stjórn sjóðsins geti framselt faglega umsýslu sjóðsins til óháðs aðila samkvæmt samningi, en það er ein af breytingartillögum sem fjölluðum um. Við fjölluðum líka um og gerum tillögu um breytingu á hlutverki sjóðsins, sem sagt að við færum aðeins meira af hlutverki Loftslagssjóðs og lögum um loftslagsmál yfir í markmið þessa frumvarps. Einnig breytum við samsetningu stjórnar sjóðsins til samræmis við það hvernig stjórn Loftslagssjóðs var skipuð og þessi útvistun sem ég fór inn á. Að öðru leyti vísa ég til nefndarálitsins til frekari útskýringar á þessu.