154. löggjafarþing — 131. fundur,  22. júní 2024.

þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.

737. mál
[22:18]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir breytingartillögu við þetta mál sem snýr að því að vinda ofan af þeirri ákvörðun sem er tekin á grundvelli breytingar sem var samþykkt árið 2020 á þessum lögum og snýr að skerjum, hólmum og eyjum landið um kring, svæði 12 eins og það er kallað. Það vakti töluverða umræðu hér í samfélaginu þegar mjög miklar kröfur komu fram vegna þessara svæða. Mér sýndist svona fljótt á litið að eina eyjan landið um kring sem hefði gleymst væri Litla-Brákarey utan við Borgarnes og ég kann í rauninni enga skýringu á hvers vegna ásælni hins opinbera náði ekki til hennar. Hér er lagt til að valdsvið óbyggðanefndar verði takmarkað við landsvæði innan meginlandsins og í 3. tölulið er fellt brott ákvæði um málsmeðferð mála sem taka til landsvæða sem eru utan þess svæðis, þ.e. eyjar, sker, drangar o.fl. Hefur breytingin í för með sér að öll yfirstandandi mál sem taka til landsvæða utan meginlandsins falla niður.

Framsögumaður málsins fór yfir það fyrr í dag að vinna væri í gangi í fjármálaráðuneytinu þar sem því hefur verið lýst yfir að ný kröfugerð yrði sett fram vegna svæðis 12 sem væri ekki eins íþyngjandi og ekki eins umfangsmikil og sú sem sett var fram í byrjun. Ég tel skynsamlegt að við sleppum fjármálaráðuneytinu og starfsmönnum þess, eða þeim sem eru að vinna þessa endurnýjuðu kröfugerð, við það sem eftir er af verkefninu. Tökum bara þá ákvörðun að stíga til baka hvað varðar þetta svokallaða svæðið 12. Þetta er ekki grundvallað á upphaflegu lögunum frá 1996 ef ég man rétt, þetta er grundvallað á þeirri breytingu sem var gerð 2020. Við eigum bara að draga þetta til baka og segja við fjármálaráðherra: Hættum þessum vitleysisgangi, hættum að sóa skattfé í þetta og látum staðar numið hvað svæðið 12 varðar.

Þetta er í raun einfalda útgáfan af því sem hér er lagt til. Ég hvet hv. þingmenn til að taka af skarið með þetta. Það er nóg að gera í fjármálaráðuneytinu annað en að vinna að svona verkefnum. Ég held að það væri allra hluta vegna skynsamlegt að láta hér gott heita hvað eyjar, hólma og sker varðar.