154. löggjafarþing — 131. fundur, 22. júní 2024.
Orkusjóður.
942. mál
Frú forseti. Við í Samfylkingunni sjáum okkur því miður ekki fært að styðja þetta mál. Það er vanreifað og hér er verið að sameina sjóði sem í rauninni eiga ekkert sameiginlegt. Við munum því ekki greiða þessu máli atkvæði en við munum styðja breytingartillögur meiri hlutans af því að þær eru til bóta.