154. löggjafarþing — 131. fundur,  22. júní 2024.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

521. mál
[23:23]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Viðreisn hefur alla tíð verið skýr í afstöðu sinni til verndar og nýtingar á auðlindum og mikilvægis þess að farið verði í löngu tímabæra endurskoðun á auðlindaákvæði í stjórnarskrá. Þótt fiskveiðistjórnarkerfið hafi gagnast að mörgu leyti vel þarfnast það heildarendurskoðunar, heildarendurskoðunar sem ekki virðist vera vilji né geta til í þessari ríkisstjórn að ganga í af alvöru. Viðreisn leggur líka áherslu á gegnsæi og fyrirsjáanleika. Ein af vörðunum á þeirri leið eru skýrar leikreglur fyrir atvinnulífið. Að því sögðu þá situr líka í manni þessi furðulega uppákoma og þessi furðulegu vinnubrögð meiri hlutans í þessu máli á síðustu andartökum þingsins. Það er ekki góður bragur á þeim né heldur því að hér hafi ekki verið notað kjörið tækifæri til að skrifa inn í regluverkið ákvæði um tímabundinn rétt til nýtingar á náttúruauðlind í eigu þjóðarinnar. Viðreisn verður því gul á endanlegri afgreiðslu á þessu máli.