154. löggjafarþing — 131. fundur,  22. júní 2024.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

910. mál
[23:27]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Fyrr í dag felldi stjórnarmeirihlutinn tillögu okkar í Samfylkingu um að hækkun fæðingarorlofs og sorgarleyfis taki ekki einungis til þeirra sem eignast barn eða missa barn eftir tiltekna dagsetningu. Þar var hins vegar misritun í tillögutexta og mér skilst að það hafi verið þess vegna sem einhverjir þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem höfðu talað fyrir breytingunni greiddu atkvæði gegn henni. Ég lagði þess vegna fram breytingartillöguna að nýju þar sem þessi lagatæknilegu mistök hafa verið leiðrétt og geri þá fastlega ráð fyrir breiðari stuðningi.