154. löggjafarþing — 132. fundur,  22. júní 2024.

húsaleigulög.

754. mál
[23:56]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um lög þar sem réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda er eflt og sérstaklega að því er varðar langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð. Hér er um að ræða gríðarlega góða vinnu í hv. velferðarnefnd en frumvarpið byggir á vinnu til langs tíma, vinnu starfshópa sem skipaðir hafa verið undanfarin ár í tengslum við áskoranir á húsnæðis- og leigumarkaði. Hér er afar mikilvægt mál sem tengist kjarasamningum og er nátengt lífskjörum vinnandi fólks og þess vegna mikið fagnaðarefni.