154. löggjafarþing — 132. fundur,  23. júní 2024.

þingfrestun.

[00:07]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Ég þakka hv. 8. þm. Reykv. s., Hönnu Katrínu Friðriksson, fyrir hlý orð í minn garð og þakka hv. þingmönnum fyrir að taka undir þau. Ég endurtek óskir mínar til allra alþingismanna og starfsliðs Alþingis. Ég bið þingheim nú að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]