155. löggjafarþing — þingsetningarfundur

ávarp forseta Alþingis.

[14:24]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Hv. alþingismenn. Ég býð ykkur velkomna til starfa á 155. löggjafarþingi, sem nú er að hefjast. Einnig býð ég velkomna gesti Alþingis við þingsetningarathöfnina og heilsa starfsfólki skrifstofu Alþingis og vænti góðs af samstarfinu við ykkur eins og endranær.

Þingið sem nú er að hefjast er hið síðasta á kjörtímabilinu. Þingkosningar verða á næsta ári og þeim fylgja vissulega ávallt tímamót þótt samfellan í stjórnskipuninni sé tryggilega lögfest. En upphaf nýs löggjafarþings hverju sinni markar líka tímamót. Þá hefst ný lota þingstarfa sem oft er krefjandi og annasöm. Það helgast auðvitað af því að viðfangsefni þingsins eru fjölmörg og oftar en ekki flókin og margþætt líka. Álagið ræðst einnig af starfsháttum hér innan húss og það er auðvitað mikið undir þingheimi komið hvernig til tekst hverju sinni. Ég óska þess að við berum gæfu til að vinna vel og skipulega að verkefnum þessa síðasta þings á yfirstandandi kjörtímabili.

Það er rótgróið í menningu okkar að fagna merkisviðburðum. Það gerum við í okkar einkalífi með ættingjum og vinum þegar tilefni gefast og eins á opinberum vettvangi. Þegar líður að afmælum ýmissa tímamótaviðburða í þjóðlífinu þykir okkur rétt að minnast þeirra með verðugum hætti. Árið 1930 var 1000 ára afmælis Alþingis minnst á Þingvöllum með veglegri hátíð sem tókst vel í hvívetna og lifði lengi í minningu þeirra sem þar voru sem einstæður hátíðarviðburður. Það var ekki sjálfsagt mál á þeim tíma að halda fjölmenna útihátíð á Þingvöllum „á eyðistað til fjalla“, eins og einn nefndarmanna í hátíðarnefndinni komst að orði. Þau voru bæði mörg og stór verkefnin sem þurfti að leysa til að allt gengi vel fyrir sig og hátíðin yrði landi og þjóð til sóma. En með markvissum undirbúningi og samstilltu átaki tókst að fagna hinum merku tímamótum með slíkum glæsibrag að bæði heimamenn og erlendir gestir Alþingishátíðarinnar á Þingvöllum hrifust af því sem þar fór fram.

Árið 2030 verður öld liðin frá 1000 ára afmælishátíð Alþingis og það er orðið tímabært að leggja á ráðin um það hvernig 1100 ára afmælis þingsins verður minnst. Ég mun sem forseti hafa frumkvæði að því að lögð verði fram á þessu þingi þingsályktunartillaga um undirbúning fyrir 1100 ára afmælishátíð Alþingis árið 2030. Með því móti verður hægt að hefja þennan undirbúning tímanlega og leggja drög að margvíslegum verkefnum sem hæfa þessum merku tímamótum.

Kjörinn umboðsmaður Alþingis, Skúli Magnússon, sem gegndi embættinu frá 1. maí 2021, hefur verið skipaður dómari við Hæstarétt. Fjórir einstaklingar hafa gefið kost á sér í þetta embætti og mun forsætisnefnd Alþingis gera tillögu til Alþingis um það fyrir lok þessa mánaðar hver skuli gegna embættinu.

Mér hefur orðið nokkuð tíðrætt um tímamót af ýmsu tagi og vissulega voru tímamót á þessu ári þegar tekið var í notkun nýtt skrifstofuhús fyrir Alþingi sem fengið hefur nafnið Smiðja. Nú er byggingu þessa húss lokið, það er fullbúið og hefur þegar gegnt sínu hlutverki síðan í vetur. Í Smiðju eru starfsstöðvar þingmanna og stórs hluta starfsliðs Alþingis. Húsið er af þeim sökum ekki opið almenningi daglega en næstkomandi laugardag, þann 14. september, munu dyr Smiðju standa öllum opnar og við bjóðum gesti velkomna til að skoða hið nýja hús á formlegum vígsludegi þess. Jafnframt verður boðið upp á leiðsögn um Alþingishúsið þennan dag.

Nú verður þessum þingfundi brátt frestað og ég bið þingmenn og gesti Alþingis að þiggja veitingar í Smiðju í tilefni dagsins. Ég vil biðja hæstv. forsætisráðherra að ganga fremstan með mér úr salnum til Smiðju.