mannabreytingar í nefndum.
Forseta hefur borist bréf, dagsett 27. ágúst sl., frá formanni þingflokks Pírata um mannabreytingar í nefndum þingsins, sbr. 16. gr. þingskapa:
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir tekur sæti sem aðalmaður í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Halldóru Mogensen og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir verður varamaður í sömu nefnd í stað Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur. Andrés Ingi Jónsson tekur sæti sem aðalmaður í fjárlaganefnd í stað Björns Levís Gunnarssonar en Halldóra Mogensen verður varamaður í stað Andrésar Inga Jónssonar í sömu nefnd. Þá mun Björn Leví Gunnarsson taka sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur. Halldóra Mogensen tekur sæti sem aðalmaður í atvinnuveganefnd í stað Gísla Rafns Ólafssonar og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir verður varamaður í stað Björns Levís Gunnarssonar í sömu nefnd. Þá mun Gísli Rafn Ólafsson taka sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur og Björn Leví Gunnarsson tekur sæti sem varamaður í stað Halldóru Mogensen í sömu nefnd.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.
Forseta hefur borist bréf, dagsett 10. september, frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um mannabreytingar í nefndum þingsins, sbr. 16. gr. þingskapa:
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir tekur sæti sem aðalmaður í fjárlaganefnd í stað Jóhanns Friðriks Friðrikssonar og Ingibjörg Isaksen verður varamaður í sömu nefnd í stað Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur. Þá mun Jóhann Friðrik Friðriksson taka sæti sem aðalmaður í utanríkismálanefnd í stað Hafdísar Hrannar Hafsteinsdóttur.
Einnig hefur borist bréf, dagsett 10. september, frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um mannabreytingar í nefndum þingsins, sbr. 16. gr. þingskapa:
Birgir Þórarinsson tekur sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Teits Björns Einarssonar. Þá munu Teitur Björn Einarsson og Jón Gunnarsson taka sæti sem aðalmenn í atvinnuveganefnd í stað Birgis Þórarinssonar og Ásmundar Friðrikssonar.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum