155. löggjafarþing — 1. fundur,  10. sept. 2024.

afbrigði um sætaúthlutun.

[16:06]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. 4. mgr. 3. gr. þingskapa, þannig að hluta megi um sæti formanna þingflokka sérstaklega og þeir hafi sæti næst inngangi í salinn og dragi innbyrðis um þessi sæti.

Skoðast þau afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.

Samkvæmt því eru þá sæti þingflokksformanna þessi: Bergþór Ólason hlýtur sæti 7, Guðmundur Ingi Kristinsson hlýtur sæti 23, Hanna Katrín Friðriksson hlýtur sæti 8, Hildur Sverrisdóttir hlýtur sæti 45, Ingibjörg Isaksen hlýtur sæti 13, Logi Einarsson hlýtur sæti 2, Orri Páll Jóhannsson hlýtur sæti 22 og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hlýtur sæti 44.

Þá hefur enn fremur orðið samkomulag um hvernig hluta skuli um sæti fyrir hv. þingmenn Ingu Sæland og Steinunni Þóru Árnadóttur þannig að þær fái sæti sem henta þeim sérstaklega. Fær Inga Sæland sæti 6 og Steinunn Þóra Árnadóttir sæti 57.

Þetta skoðast samþykkt og ég bið hv. þingmenn að færa sig til hinna nýju sæta og sama á við þegar dregið hefur verið um sæti hér á eftir.