155. löggjafarþing — 1. fundur,  10. sept. 2024.

tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.

[16:18]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Til næsta fundar verður boðað með dagskrá. Hann verður annað kvöld, miðvikudaginn 11. september og hefst kl. 19:40. Þá flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar sbr. 62, gr. þingskapa, og fram fara umræður um hana.

Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Umferðir verða tvær og verður ræðutími 6 mínútur í hvorri umferð en forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu. Umræðunni verður að venju útvarpað og sjónvarpað.