155. löggjafarþing — 2. fundur,  11. sept. 2024.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:41]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti: Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram munu fara umræður um hana, sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu.

Umræðurnar skiptast í tvær umferðir. Forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 6 mínútur í fyrri umferð og í seinni umferð hafa þingflokkarnir 6 mínútur hver.

Röð flokkanna er í báðum umferðum þessi: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Flokkur fólksins, Framsóknarflokkur, Píratar, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Viðreisn og Miðflokkurinn.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í fyrri umferð og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra í seinni umferð.

Fyrir Samfylkinguna tala Kristrún Frostadóttir, 3. þm. Reykv. s., í fyrri umferð og Þórunn Sveinbjarnardóttir, 8. þm. Suðvest., í seinni umferð.

Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 7. þm. Reykv. s., í fyrri umferð og Tómas A. Tómasson, 9. þm. Reykv. n., í seinni umferð.

Fyrir Framsóknarflokk tala í fyrri umferð Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra og í seinni umferð Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

Ræðumenn Pírata verða í fyrri umferð Halldóra Mogensen, 3. þm. Reykv. n., og í seinni umferð Andrés Ingi Jónsson, 10. þm. Reykv. n.

Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra í fyrri umferð og Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra í seinni umferð.

Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrri umferð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 5. þm. Suðvest., og Hanna Katrín Friðriksson, 8. þm. Reykv. s., í þeirri seinni.

Ræðumenn Miðflokksins verða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þm. Norðaust., í fyrri umferð, og Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvest., í seinni umferð.