155. löggjafarþing — 2. fundur,  11. sept. 2024.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[20:13]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Það er farið að hausta eftir sumar sem aldrei kom. Reyndar er veðrið líklega það eina sem ríkisstjórninni er ekki kennt um af þeim sem eru í þessum sal. Eftir nokkrar vikur eru sjö ár liðin frá því ríkisstjórn Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs tók við stjórnartaumunum á Íslandi. Í stjórnartíð þessara flokka hefur mikið áunnist í umbótum á Íslandi á flestum sviðum. Í stjórnartíð þessara flokka hefur samfélagið líka þurft að takast á við stór og krefjandi verkefni. Eldsumbrot. Heimsfaraldur. Í heimsfaraldrinum var ríkissjóði beitt af fullu afli til að milda áhrifin af þeirri fordæmalausu stöðu sem við stóðum frammi fyrir og vissum ekki hvenær tæki enda. Ríkissjóði var beitt til að tryggja afkomu fólks. Þá þótti stjórnarandstöðunni ekki nóg að gert. Nú þykir henni of langt hafa verið gengið, í baksýnisspeglinum. Útsýnið af hliðarlínunni er misgott.

Við höfum á þeim stutta tíma sem liðinn er frá faraldrinum náð undraskjótum efnahagslegum bata. En það eru aukaverkanir af hröðum vexti. Við höfum síðustu misserin búið við allt of háa verðbólgu, allt of háa vexti, sem koma niður á lífsgæðum okkar — tímabundið. Síðasta vetur var skrifað undir langtímakjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Aðkoma ríkisstjórnarinnar gerði þessa samninga mögulega. Megináherslan var á að koma til móts við barnafjölskyldur og ungt fólk með hækkun barnabóta, gjaldfrjálsum skólamáltíðum, húsnæðisbótum auk sérstaks vaxtastuðnings sem greiddur var út um síðustu mánaðamót. Þessi aðkoma ríkisins var til að styðja aðila vinnumarkaðarins í þeirra góðu vegferð sem fólst í því að gera hófsama kjarasamninga sem myndu stuðla að lækkun verðbólgu og þar með lækkun vaxta. Og við sjáum nú til lands í þeirri sameiginlegu baráttu. Þetta er allt að koma.

Við sjáum fram á mjúka lendingu hagkerfisins, farsæla aðlögun, án neikvæðra áhrifa á atvinnuþátttöku. Það plan sem ríkisstjórnin lagði upp með er að bera árangur. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar og langtímakjarasamningar hafa þar mest að segja og eru styðjandi við Seðlabankann. Og megináhersla þessarar ríkisstjórnar, reyndar megináhersla í stefnu Framsóknar frá stofnun flokksins, er að koma í veg fyrir atvinnuleysi, tryggja næga atvinnu og verðmætasköpun. Sterkt atvinnulíf og mikil atvinnuþátttaka er grunnur að lífsgæðum okkar hér á Íslandi.

Það er nefnilega svo að þegar talað er um lága verðbólgu á Spáni þá búa Spánverjar við tæplega 12% atvinnuleysi þegar atvinnuleysi á Íslandi er 3,3%. Atvinnuleysi í Svíþjóð er 8,5% og það er svipað í Finnlandi. Atvinnuleysi yngsta hópsins á Íslandi er á milli 8 og 9%, býsna hátt En á Spáni er það tæp 27% og í Svíþjóð og Finnlandi um og yfir 20%. Myndum við sætta okkur við slíkar atvinnuleysistölur? Það held ég ekki. Af því að atvinnuleysi fylgir vanmáttartilfinning sem er óholl fólki og samfélögum, vanmáttartilfinning yfir því að geta ekki fjármagnað heimili og fjölskyldu.

Á morgun mæli ég fyrir frumvarpi til fjárlaga ársins 2025. Í því er boðað áframhaldandi aðhald en mikilvægustu málaflokkunum sem snúa að heilbrigði, velferð, menntun og löggæslu er hlíft. Það eru ekki tekin nein heljarstökk, engar kollsteypur, heldur stigin markviss skref í átt að meira jafnvægi. Við munum sjá innan skamms árangurinn af því erfiði sem samfélagið hefur tekið á sig. Auðvitað er skiljanlegt að fólk vilji sjá hraðari atburðarás, auðvitað er skiljanlegt að pólitískir andstæðingar vilji nýta þreytu samfélagsins á verðbólgunni til að komast að áður en fólk fer að upplifa auðveldari mánaðamót. Það er einfalt að hrópa hæðnislegar athugasemdir til þeirra sem standa í eldlínunni. Einfalt að koma með hnyttnar líkingar. En það eru ekki merkileg stjórnmál sem byggja á hæðni fremur en samvinnu og dugnaði.

Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Við höfum sem samfélag upplifað miklar breytingar á síðustu árum. Það á enginn samfélag. Við erum hins vegar öll hluti af samfélagi og getum lagt til þess bæði gott og illt. Við þurfum að vera meðvituð um það sem við eigum sameiginlegt. Við þurfum að vera stolt af því sem íslenskt samfélag hefur áorkað í gegnum aldirnar og ekki síst á 80 ára tíma lýðveldisins. Sú bylting sem hefur orðið með tilkomu samfélagsmiðla á síðustu árum hefur breytt samskiptum okkar. Við erum orðin tvístraðri sem samfélag og sú þróun ýtir undir skautun og einangrun. Það hefur líklega aldrei verið mikilvægara en nú að við horfum á það sem sameinar okkur fremur en að ýkja sérstöðu okkar, bæði sem manneskjur og samfélag.

Ég vona að okkur sem sitjum á Alþingi lánist í vetur að vinna saman að þeim málum sem helst brenna á þjóðinni. Við í Framsókn munum alla vega ekki láta okkar eftir liggja.