Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Kæra þjóð. Við sem samfélag stöndum á krossgötum. Hvert áfallið á fætur öðru hefur dunið á okkur og stundum mætti halda að hörmungum ætli aldrei að linna. Við vorum rétt skriðin upp úr heimsfaraldri með fordæmalausri félagslegri einangrun þegar Reykjanesskaginn tók sig til stuttu síðar og hrakti þúsundir Grindvíkinga á flótta í eigin landi. Á sama tíma réðst Rússland inn í Úkraínu og daglega berast okkur fréttir af þjóðarmorði á palestínsku þjóðinni á meðan heimsbyggðin situr hjá. Þó að gríðarleg verðbólga og himinháir vextir hér heima séu kannski lítilsháttar óþægindi í þessu samhengi hefur þessi staða ýtt undir nú þegar mjög alvarlega húsnæðiskrísu og skapað mikla erfiðleika í lífi fólks sem þegar átti á brattann að sækja.
Fyrir stuttu réðst 16 ára barn á annað barn og varð henni að bana. Það verður að koma í veg fyrir að slíkur harmleikur endurtaki sig. Ofbeldi verður ekki til í tómarúmi. Samfélagslegir innviðir eiga að vinna gegn ofbeldi með því að styðja betur við fjölskyldur og börn og meðhöndla áföll foreldra og barna snemma. En öll kerfi hins opinbera sem eiga að grípa fólk sem þarf á aðstoð að halda hanga á bláþræði og hafa gert það allt of lengi. Skaðinn sem hlýst af því að hunsa mikilvægi þeirrar grunnþjónustu sem hlúir að andlegu og líkamlegu heilbrigði okkar er oftast óafturkræfur. Þessi grunnþjónusta á að grípa þegar við eigum í erfiðleikum og ýta undir getu og vilja okkar til að taka þátt í og bera hlýhug til samfélags okkar. Virðingin okkar fyrir samfélaginu nær nefnilega ekki lengra en virðingin sem samfélagið sýnir okkur. Við lærum það sem fyrir okkur er haft.
Á þessum krísutímum þegar okkur hefur sárvantað sterka og sameinaða ríkisstjórn höfum við þurft að díla við sundraða ríkisstjórn, í raun þrjár ríkisstjórnir með þrjár ólíkar stefnur sem ná ekki saman, ekki einu sinni í smærri málum. Í kjölfarið gerist lítið í þeim risastóru mikilvægu málum sem þarf að vinna hér á þinginu og traust almennings til lýðræðisins fer skiljanlega dvínandi. Vantraust á lýðræðislegum ferlum og stofnunum samfélagsins sundrar okkur og ýtir undir ótta og tortryggni. Þetta nýta sér óprúttnir stjórnmálamenn sem kynda undir fordómum og gefa í skyn að örlítill hópur fólks sem er á flótta undan stríði beri einhvern veginn ábyrgð á vandamálum á borð við húsnæðisskort og vanda í heilbrigðiskerfinu. En það er óásættanlegt að kenna minnihlutahópum um vandamál sem stjórnvöld hafa í hendi sér að leysa.
Kæra þjóð. Þessi ríkisstjórn hefur aldrei verið tilbúin til að skoða rót vandans, hugmyndafræðina sem litar þeirra eigin pólitík og samfélagsgerðina okkar alla. Undanfarna áratugi hefur einstaklingshyggjan í bland við hugmyndir um verðleikasamfélag, eða það sem kallast „meritocracy“ á ensku, ráðið hér ríkjum, sú hugmynd að þeir sem hafi mestu og bestu verðleikana fái að njóta afraksturs vinnu sinnar. Þetta hljómar réttlátt, þetta hljómar fallega en veruleikinn er annar. Niðurstaðan er sú að samfélagið okkar lofsyngur þá sem skila árangri en niðurlægir fólkið sem nær ekki árangri. Þessi hugsunarháttur flokkar fólk í sigurvegara og tapara sem eiga örlög sín skilið, algerlega óháð ytri aðstæðum. Þarna höfum við fundið hina raunverulegu skautun í samfélaginu. Þegar við búum til sigurvegara sem eiga völd sín og auð skilið og tapara sem verðskulda fátækt og útilokun þá lítum við algerlega fram hjá þeirri úreltu hagstefnu sem hefur afdrifarík áhrif á getu fólks til þess að sigra. Þannig vekjum við upp reiði, máttleysi og rof á tengslum og samkennd í samfélaginu. Skautun af þessu tagi er drifkrafturinn í þeirri bylgju popúlisma sem við höfum séð rísa í hinu pólitíska landslagi víða um heim síðasta áratug.
Við stöndum á krossgötum sem samfélag vegna þess að við þurfum að taka ákvörðun um hvaða leið við viljum fara. Viljum við fara leið áframhaldandi einstaklingshyggju og tengslarofs eða veljum við mennskuna? Markaðsdrifin samfélög, sérstaklega þau sem eru drifin áfram af hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar, hafa forgangsraðað efnahagslegri velgengni og auðsöfnun á kostnað samheldni, samvinnu og samfélagslegrar ábyrgðar. Við sjáum afleiðingarnar alls staðar í kringum okkur í samfélaginu; aukinn ójöfnuður, biðlistar eftir heilbrigðisþjónustu, geðheilbrigðiskerfi sem berst í bökkum, húsnæðiskrísa, aukið ofbeldi, loftslagskrísa og sundrung. Ef við getum breytt um kúrs og valið mennskuna þá þurfum við að styðja við stjórnmál sem forgangsraða samfélagslegri velmegun fram yfir þrönga eiginhagsmuni og ryðja úr vegi þeim kerfislægu hindrunum sem halda aftur af tækifærum fólks til menntunar, heilbrigðisþjónustu og atvinnu. Væri ekki spennandi ef næsta ríkisstjórn hefði raunverulegan áhuga á því að búa til rými og tækifæri fyrir fólk til að taka virkan þátt í samfélaginu? Stjórnmál er miklu meira en bara einhver hagvöxtur og hagkvæmur rekstur. Stjórnmál verða líka að fjalla á dýpri hátt um áhrif hugmyndafræði á samfélagið okkar og um réttlæti, sanngjarna skiptingu gæða og almannaheill. Slíkt samtal þarf einnig að ná til almennings því að öll eigum við að fá tækifæri til að skilgreina samfélagið sem við viljum búa í saman. Hér leikur ungt fólk lykilhlutverk enda er framtíðarsamfélagið á ábyrgð þess. En það gerist ekki af sjálfu sér að ungt fólk taki þátt í samtalinu. Það þarf að undirbúa jarðveginn, það þarf að skapa rými, það þarf að skapa áhuga og tækifæri til þátttöku. Til þess þarf stjórnmálafólk sem í alvörunni trúir því að þátttaka ungs fólks skipti sköpum fyrir samfélagið til lengri tíma og beitir sér fyrir því að það verði að veruleika.
Kæra þjóð. Við getum valið aðra leið. Við getum valið mennskuna og það er mín einlæga von að þið séuð til í það ferðalag.