Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Við höldum nú inn í síðasta vetur kjörtímabilsins og okkar bíða ærin verkefni. Fleira og fleira fólk á erfitt með að ná endum saman vegna hárra vaxta. Að ná niður verðbólgu þannig að vextir geti lækkað verður því stærsta verkefni þessa vetrar.
Það er alveg skýrt að ríkisstjórnin mun ekki ráðast gegn verðbólgunni með blóðugum niðurskurði sem myndi ógna félagslegum stöðugleika. Jú, við munum vissulega sýna aðhald í ríkisfjármálum og sporna við útgjaldavexti, en einnig afla nýrra tekna. Við verjum velferðina fyrir niðurskurðarhnífnum sem sumir stjórnarandstöðuflokkar munda og vilja beita.
Virðulegur forseti. Við munum halda áfram að efla velferðarkerfið og hið félagslega stuðningsnet, einkum til að koma til móts við þá hópa sem verðbólgan hefur leikið hvað verst; lágtekjufólk og barnafjölskyldur. Hér skiptir mestu máli ríflegur kjarapakki ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Í honum eru miklar kjarabætur í formi hækkaðra húsnæðisbóta, hækkaðra barnabóta, gjaldfrjálsra skólamáltíða, vaxtabóta og frekari uppbyggingar félagslegs húsnæðis. Allar þessar aðgerðir eru félagslegs eðlis og þær stuðla að jöfnuði og réttlátara samfélagi. En við stöndum hins vegar enn frammi fyrir of hárri verðbólgu, þó svo að hún sé á niðurleið. Það er að stórum hluta vegna húsnæðisliðarins. Þar þarf áframhaldandi sameiginlegt átak.
Virðulegur forseti. Ísland er ríkt af auðlindum. Við Vinstri græn leggjum ríka áherslu á að tryggja stjórnarskrárvarða þjóðareign á auðlindum fyrir kynslóðir framtíðarinnar, jafnframt að sterku umhverfisverndarákvæði verði komið í stjórnarskrá og að gjald af nýtingu auðlinda renni í sameiginlega sjóði okkar. Við verðum að tryggja sjálfbæra nýtingu allra auðlinda og breyta hugsunarhætti okkar og fara að horfa meira á náttúruna sem friðhelga og að nýting hennar sé undantekning frá þeirri meginreglu.
Virðulegi forseti. Loftslagsváin vofir enn yfir okkur. Það vitum við öll. Um leið og ég fagna því að ný aðgerðaáætlun í loftslagsmálum hafi litið dagsins ljós þá leyfi ég mér að brýna okkur öll, allt samfélagið, fyrirtæki, almenning, einstaklinga, til að taka enn stærri skref. Loftslagsmálin verða alltaf að vera útgangspunktur því að loftslagið er umgjörðin og grunnurinn utan um auðlindirnar og vistkerfin og á auðlindunum og vistkerfunum byggjum tilvist okkar. Án þeirra höfum við ekkert, hvorki fæði né klæði. Þess vegna er baráttan gegn loftslagsvánni ekki bara stærsta umhverfismálið heldur líka eitt stærsta velferðarmál 21. aldarinnar.
Virðulegi forseti. Á undanförnum árum höfum við samþykkt hér á Alþingi margvísleg mál sem hafa fært okkur fram á við þegar kemur að jafnrétti kynjanna, þegar kemur að mannréttindum hinsegin fólks og jafnri meðferð fólks utan sem innan vinnumarkaðarins. En samt sem áður erum við að upplifa bakslag í viðhorfum gagnvart konum, viðhorfum gagnvart hinsegin fólki, gagnvart fötluðu fólki og innflytjendum úti um allan heim. Við sem samfélag verðum að snúa bökum saman og snúa þessu bakslagi við. Mig langar að nefna að í mínum huga er t.d. algjört forgangsverkefni að útrýma kynbundnum launamun og að útrýma kynbundnu ofbeldi. Hvorugt á heima í samfélagi okkar. Við verðum að virða allt hinsegin fólk eins og það er, ekki bara hommana og lesbíurnar heldur líka trans fólk og intersex fólk og aðra hópa.
Virðulegi forseti. Þau hræðilegu ofbeldismál meðal ungmenna sem við höfum orðið vitni að undanfarið mega ekki endurtaka sig. Leiðarljósið þarf að vera samfélag þar sem samkennd, kærleikur og heilbrigð samskipti eru í forgrunni. Ríkisstjórnin hefur sett aðgerðir gegn ofbeldi barna í algjöran forgang.
Virðulegi forseti. Við höfum náð miklum árangri fyrir samfélagið á undanförnum árum en baráttunni fyrir félagslegu réttlæti, mannréttindum og kvenfrelsi, friði og umhverfis- og náttúruvernd lýkur aldrei. Á komandi þingvetri bíða okkar mörg þýðingarmikil mál. Það mætti nefna samgönguáætlun, það mætti nefna lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, stefnu á sviði sjávarútvegs og margvíslegar breytingar á fiskveiðilöggjöfinni, ekki síst breytingar sem eiga að auka gagnsæi og réttlæti í meðferð þessarar sameiginlegu auðlindar þjóðarinnar.
Ég mun jafnframt í nóvember koma með mikilvæg þingmál í málefnum innflytjenda fyrir þingið en tækifæri innflytjenda hér á Íslandi eru ekki þau sömu og innfæddra eins og klárlega kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags og framfarastofnunarinnar, OECD. Hér þarf að gera betur. Það þarf meiri aðstoð í skólana, það þarf að auka færni og kunnáttu innflytjenda í íslensku og það þarf að meta að meiri verðleikum hæfileika, menntun og reynslu innflytjenda. Það er gott fyrir einstaklingana og það er gott fyrir samfélagið.
Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Við göngum nú í gegnum erfiðleika í efnahagslífinu en við munum komast saman í gegnum þá erfiðleika og það sést til lands í þeim efnum. Við munum hafa hag almennings að leiðarljósi í störfum okkar.