Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Góðir áheyrendur, nær og fjær. Íslenskt samfélag er í tilvistarkreppu. Við erum harmi lostin vegna ofbeldis á götum úti og vegna unga fólksins sem kveður okkur allt of snemma. Gulur september minnir okkur á þau. Hann minnir okkur líka á að djúpstæðan vanda er ekki hægt að leysa með röð átaksverkefna. Uppbygging heilbrigðis- og velferðarkerfis er og verður brýnasta verkefni stjórnmálanna.
Íbúum þessa lands hefur fjölgað um 20% á síðastliðnum áratug. Í ofanálag tökum við á móti meira en tveimur milljónum ferðamanna á hverju ári. Það er ekki að furða að það reyni á innviði samfélagsins, innviði sem er haldið uppi af innflytjendum sem eru nógu góðir til að efla hagvöxt og velsæld okkar hinna en mega helst ekki komast í rjómann, eins og OECD hefur bent okkur á.
Mig langar að nefna við ykkur tvær systur. Þær heita Vanda Sig og Drífa Sig og koma við sögu í lífi mínu daglega. Ég verð að viðurkenna að það er ekki alltaf gott jafnvægi á milli systranna Vöndu og og Drífu. Viðar Halldórsson félagsfræðingur benti nýverið á að það sé eins og við höfum týnt okkur sjálfum, misst sjónar á töfrum þess að búa saman í samfélaginu. Allt þarf að gerast hratt og við viljum gleypa heiminn, helst í einum bita. En við þurfum að minnka hraðann og draga úr samfélagslegri streitu. Kannski eiga systurnar Drífa og Vanda þriðju systurina og ég held að hún heiti Hvíla Sig.
Frú forseti. Það eru engar hömlur á þau sem eiga pening en alltaf verið að setja hömlur á okkur hin. Þetta sagði maður á fundi Samfylkingarinnar í síðustu viku. Þar lýsti hann í einni setningu upplifun venjulegs fólks af eignaójöfnuði og misskiptingu. Þetta allt saman kristallast á húsnæðismarkaði þar sem fjársterkir aðilar kaupa upp íbúðir í Airbnb-útleigu og einungis börn efnameiri foreldra komast inn á markaðinn.
Það hefur mikið verið rætt um læsi og lesskilning barnanna okkar á undanförnum mánuðum og misserum. Niðurstöður PISA sýna okkur að það er beint áhrifasamband á milli félagslegrar og efnahagslegrar stöðu heimila sem börn búa á og lesskilnings þeirra. Læsi snýst um efnahag og félagslega stöðu. Og PISA sýnir okkur líka fleira; hún sýnir okkur að það skortir samkennd og samvinnu hjá unga fólkinu okkar. Ég hef meiri áhyggjur af því en að börnin okkar taki sig ekki á í lestrinum.
Bakslagið í jafnréttisbaráttunni og kvenfrelsisbaráttunni veldur mér líka áhyggjum. Enn eru ævitekjur kvenna 20% lægri en karla og kvennastéttir, eins og leikskólakennarar, knýja á um betri kjör og starfsumhverfi. En í stað þess að fjármagna leikskólastigið betur er hafin tilraunastarfsemi með leikskólana án þess að jafnréttisáhrif hennar hafi verið metin. Ég er í engum vafa um að stytting vinnutíma og betra starfsumhverfi muni skila leikskólunum betra starfsfólki og ánægðara og betri mönnun, en við getum ekki gert það með þjónustuskerðingu og hækkuðum gjöldum sem kemur verst niður á þeim sem síst mega við því. Það er leitun að fyrirkomulagi sem gengur eins augljóslega gegn hagsmunum kvenna og láglaunafólks á vinnumarkaði og þetta nýja fyrirkomulag sem stundum er kennt við Kópavog. Það er nefnilega þannig að hagsmunir barna og foreldra fara saman í þessu eins og öðru.
Forseti. Í 11 mánuði höfum við horft upp á Ísraelsher gereyða Gaza-ströndinni og nú eru þeir byrjaðir á Vesturbakkanum. Það eru tvö og hálft ár frá innrás Rússlands í Úkraínu og í Súdan geisar nú eitt hryllilegasta stríð sem menn hafa séð. Það er ólíkt hlutskipti stúlknanna í Kabúl og Kópavogi. Það er ekki nema von að spurt sé: Hvar eru friðflytjendurnir?
En að lokum á jákvæðari nótum, hæstv. forseti. Við þingsetninguna í gær hlýddum við á boðskap nýs biskups og nýs forseta. Þar gat að líta nýja ásýnd og nýjar áherslur í þessum mikilvægu embættum. Vonandi verður þess ekki lengi að bíða að nýr forsætisráðherra bætist í þennan fríða hóp. — Ég þakka þeim sem hlýddu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)