155. löggjafarþing — 2. fundur,  11. sept. 2024.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[20:59]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf):

Virðulegi forseti. Áður en lengra er haldið vil ég þakka fyrir þessa dásamlegu nýju stóla sem gera það að verkum að það er miklu auðveldara að hlusta á menn sem tala úr þessu púlti.

Góðir landsmenn. Að axla ábyrgð er fyrsta skrefið í átt að velgengni. Vilji er allt sem þarf. Hæstv. forsætisráðherra talar um árangur og velgengni á sama tíma og stýrivextir hafa verið 9,25% í heilt ár. Þjóðin þjáist. Efnahagslífið stendur á brauðfótum. Og hver ber ábyrgð? Hver mun draga okkur upp úr hyldýpinu og koma skipinu aftur á réttan kjöl? Ég hef borið ábyrgð á mínum eigin rekstri í 40 ár. Ég hef lært mikið á þessum tíma og ég vil nota þetta tækifæri til þess að veita hæstv. ráðherrum nokkur ráð. Þegar illa gengur þjónar engum tilgangi að stinga hausnum í sandinn. Það hjálpar ekki að sannfæra aðra um að allt sé í góðum fíling þegar svo er ekki. Berið ábyrgð, lærið af mistökunum og leysið vandann. Viðvarandi verðbólga og 9,25% stýrivextir er óboðlegt ástand.

Það eru fjögur ár síðan Flokkur fólksins bað ríkisstjórnina að leggja fram forvarnaaðgerðir til verndar heimilunum gegn fyrirsjáanlegri verðbólgu. Það liggur ljóst fyrir að þessi ríkisstjórn hefur á engum tímapunkti tekist á við það krefjandi verkefni að verja heimilin fyrir þeirri ágjöf sem þau taka nú á sig. Það liggur ljóst fyrir að ríkisstjórnin hefur í engu axlað ábyrgð. Það er dapurt að horfa upp á þá vanrækslu sem gengur gegn velferð samfélagsins og hefur ráðið ríkjum á þessu háa Alþingi síðastliðin sjö ár. Ábyrgðin er öllum ljós. Ábyrgðin er ríkisstjórnarinnar. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar er á pari við það ef ég stæði fyrir framan skíðlogandi grillið og myndi, í stað þess að slökkva, hlaupa heim og fá mér kaffi í góðri trú um að eldurinn myndi slokkna sjálfur og í þeirri von að veitingastaðurinn myndi ekki brenna til kaldra kola. Það eru einungis þeir best settu sem komast klakklaust í gegnum tíma sem þessa. Það á að fórna heimilum landsins á altari fjármálakerfisins sem nýtur verndar verðtryggingar. Við hin verðum bara að þola afleiðingarnar og éta það sem úti frýs.

Kæru landsmenn. Með leyfi forseta ætla ég að vitna í Harry S. Truman sem var forseti Bandaríkjanna á fyrri hluta síðustu aldar og tók vægast sagt margar umdeildar og afdrifaríkar ákvarðanir í lok seinni heimsstyrjaldar. Hans kjörorð voru: Hingað og ekki lengra. Ég ber ábyrgð. Hann hafði þessi einkunnarorð á skrifborðinu sínu alla sína forsetatíð. Þessi orð undirstrika hvað það þýðir að vera leiðtogi. Leiðtogar taka ákvarðanir og þeir þora að takast á við erfið mál og bera ábyrgð, hvort sem það er vinsælt eða ekki. Sannir leiðtogar benda ekki á aðra né eyða tíma sínum í að finna afsakanir. Hver einasti ráðherra ætti að hafa þessi einkunnarorð á skrifborði sínu: Hingað og ekki lengra. Ég ber ábyrgð. Það dapra í stöðunni er aftur á móti að í dag hljóma kjörorðin svo: Hingað og ekki lengra. Þetta reddast. Setjum málið í nefnd.

Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Það er kominn tími til að stjórnvöld axli ábyrgð og grípi til raunverulegra aðgerða til að bæta líf fólks í landinu. Það þarf kjark, það þarf þol. Hingað og ekki lengra. Ef viljinn er fyrir hendi er allt hægt. Flokkur fólksins þorir.