155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[09:33]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Í dag verður fyrst almenn umræða um fjárlagafrumvarpið í framhaldi af framsögu fjármála- og efnahagsráðherra. Hlé verður gert á almennu umræðunni um kl. 18. Fagráðherrar taka þátt í umræðum um sína málaflokka. Eftir umræður um einstaka málaflokka heldur almenn umræða áfram ef þörf krefur. Á morgun verður umræðum um málaflokka fagráðherra fram haldið.

Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar, sbr. 3. mgr. 67. gr. þingskapa. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur allt að 15 mínútur til framsögu nú í upphafi. Réttur til andsvara við ræðu ráðherra verður rýmkaður þannig að fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokka komist að. Því næst talar einn talsmaður frá hverjum þingflokki í tíu mínútur hver. Andsvör við ræður talsmanna verða leyfð fyrir aðra talsmenn og fjármála- og efnahagsráðherra. Eftir ræður talsmanna hafa aðrir þingmenn kost á að taka þátt í umræðunni og hafa til þess allt að tíu mínútur og hefðbundinn andsvararéttur gildir við þær ræður þingmanna.