155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[09:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2025 sem er 1. mál 155. löggjafarþings eins og lög gera ráð fyrir. Fjárlagafrumvarpið er byggt á grundvelli fjármálaáætlunar fyrir árin 2025–2029 sem lögð var fram og samþykkt á síðasta vorþingi.

Það er mikill kraftur í íslensku samfélagi, hagvöxtur hefur verið um 5% að jafnaði á ári og uppsafnaður hagvöxtur frá árinu 2019 nemur um 11% og er óvíða meiri en hér á landi. Þessum mikla uppgangi í efnahagslífinu ber að þakka þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar sem höfð hefur verið að leiðarljósi síðastliðin ár en hún hefur verið að byggja upp viðnámsþrótt gagnvart áföllum. Atvinnuþátttaka er í hæstu hæðum og jákvæð þróun kaupmáttar hefur sérstöðu meðal samanburðarríkja og samhliða hafa kjör þeirra efnaminni vaxið hlutfallslega mest í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar.

En nú sjáum við skýr merki um að tekið er að hægja á í efnahagslífinu án þess þó að nokkur merki séu um snögga kólnun. Þannig er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði um 0,9% á þessu ári og 2,6% á því næsta, 2025. Helsta áskorun okkar er að ná niður verðbólgu og vöxtum og það er jákvætt að við sjáum til lands, dregið hefur úr spennu á vinnumarkaði án þess að komið hafi til markverðrar aukningar atvinnuleysis og verðbólgan er að hjaðna. Lækkun verðbólgu skapar svo aftur skilyrði fyrir lækkun vaxta samhliða áframhaldandi sterkri stöðu á vinnumarkaði.

Fyrr á þessu ári var stigið stórt skref í átt að auknum stöðugleika þegar kjarasamningar til fjögurra ára voru gerðir á almennum vinnumarkaði. Aðkoma stjórnvalda til að liðka fyrir gerð kjarasamninga miðaði fyrst og fremst að því að styðja við barnafólk, leigjendur og skuldsetta íbúðareigendur sem og að stórauka stofnframlög til uppbyggingar almenna íbúðakerfisins. Ætli það sé ekki um einn þriðji af opinbera geiranum sem búinn er að semja.

Með þessu fjárlagafrumvarpi er megináherslan lögð á að skapa aðstæður fyrir lækkun vaxta samhliða því að varðveita efnahagslegan stöðugleika. Seðlabankinn hefur stigið fast á bremsuna með vaxtastýritækinu og ríkisstjórnin hefur sett sér skýr og ákveðin markmið um að beita ríkisfjármálunum til að vinna að lækkun verðbólgunnar. Á sama tíma er ríkisstjórnin einbeitt í því að verja þau grunnkerfi sem velferð samfélagsins byggist á.

Ríkisstjórnin hefur sett fram trúverðugar og metnaðarfullar áætlanir í efnahagsmálum sem alþjóðastofnanir á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn telja að séu viðeigandi í ljósi efnahagsástands og -stöðu. Í fjárlagafrumvarpi er áhersla lögð á að skapa svigrúm til að forgangsraða verkefnum. Þannig verði dregið úr ríkisumsvifum, staða ríkissjóðs styrkt og unnið gegn þenslu og verðbólgu í hagkerfinu. Það er forðast að grípa til aðgerða sem leitt geta til þjónustuskerðingar eða verri lífskjara. Það svigrúm sem skapast verður nýtt til að styrkja velferðarkerfin svo sem með nýju örorkukerfi og kjör ellilífeyrisþega verða bætt og áfram verður öflugur stuðningur við barnafjölskyldur, húsnæðiskaupendur og þá sem eru á leigumarkaði og nemur stuðningur við þessa hópa um 14 milljörðum kr. i fjárlagafrumvarpinu. Þá verður áfram stutt við innviðauppbyggingu svo sem með auknum framlögum til almenningssamganga og uppbyggingu vegakerfisins um allt land.

Kraftur í vaxtarsprotum íslensks atvinnulífs hefur verið mikilvægur drifkraftur verðmætasköpunar síðastliðin fjögur ár. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að búa fyrirtækjum samkeppnishæft rekstrarumhverfi og hyggst áfram styðja myndarlega við nýsköpun og þannig stuðla að fjölgun vaxtarbrodda atvinnulífsins. Fjölbreytt og kröftugt atvinnulíf styður ekki aðeins við vöxt lífskjara til framtíðar heldur gerir samfélaginu einnig kleift að standa af sér áföll, sem reynslan sýnir að geta knúið dyra, jafnvel á nokkurra ára fresti.

Í þessu fjárlagafrumvarpi eru engar kollsteypur heldur sýnir það hvernig ríkisstjórnin ætlar að taka markviss skref í átt að auknu jafnvægi og sterkari efnahag sem leiða mun til öflugra samfélags. Fjárlög eru nefnilega ekki bara tölur á blaði. Bak við þær er rekstur heils samfélags.

Virðulegi forseti. Mig langar nú að víkja stuttlega að innihaldi frumvarpsins svo sem afkomu ríkissjóðs, tekjum og gjöldum fyrir næsta ár. Á árinu 2025 er gert ráð fyrir að heildarjöfnuður verði neikvæður um 41 milljarð kr. en það er um 16 milljörðum kr. betri afkoma en í ár. Hins vegar verður frumjöfnuður, þ.e. jöfnuður án vaxtatekna og -gjalda, jákvæður um 36 milljarða kr. Frumjöfnuður verður þá jákvæður þriðja árið í röð og sýnir vel að ríkisstjórnin er á réttri leið við að treysta sjálfbærni opinberra fjármála.

Fjárlagafrumvarpið framfylgir markmiði fjármálaáætlunar um hóflegan vöxt útgjalda. Gert er ráð fyrir að frumgjöld ríkissjóðs lækki á næsta ári sem hlutfall af vergri landsframleiðslu og verði í hlutfalli eins og á árinu 2019, en frumgjöldin ríkissjóðs á þennan mælikvarða hafa farið lækkandi síðastliðin fimm ár. Við erum sem sagt búin að ná stöðunni fyrir Covid. Þá er gert ráð fyrir því að skuldir ríkissjóðs samkvæmt skuldareglunni fari lækkandi sem hlutfall af vergri landsframleiðslu og verði rúmlega 31% af vergri landsframleiðslu í lok árs 2025 en þá hefur verið tekið tillit til sölu á eignarhlut í Íslandsbanka.

Tekjur ríkissjóðs lækka þó lítið eitt sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. Tekjuáætlun fyrir fjárlagaárið 2025 byggir á endurmetinni tekjuáætlun ársins 2024 og þjóðhagsspá að teknu tilliti til fyrirhugaðra skattkerfisbreytinga. Stærsta skattkerfisbreyting ársins felst í kerfisbreytingu á gjaldtöku af ökutækjum og eldsneyti og stefnt er að því að tekjur af ökutækjum og eldsneyti verði aftur, það er sem sagt langtímastefnan, 1,7% af vergri landsframleiðslu, sem var sögulegt meðaltal áranna 2010–2017 en hefur farið mjög hratt lækkandi á síðustu árum. Tekjur af ökutækjum og eldsneyti hafa fallið töluvert og má búast við að sú þróun haldi að óbreyttu áfram. Til að bregðast við þeirri þróun verður tekið upp kílómetragjald vegna notkunar bifreiða en samhliða verða eldri gjöld felld niður, þ.e. vörugjöld af bensíni og olíugjald af dísilolíu. Jafnframt verður kolefnisgjald hækkað til að viðhalda hvötum til orkuskipta. Þetta er auðvitað framhald þeirrar aðgerðar að setja kílómetragjald á rafmagnsbíla á þessu ári.

Einnig verður innleiddur 15% alheimslágmarksskattur á alþjóðleg fyrirtæki sem fjöldi ríkja hefur þegar innleitt. Tilgangur skattlagningarinnar er að koma í veg fyrir að stór alþjóðleg fyrirtæki geti komist hjá skattlagningu með því að færa hagnað til lágskattaríkja. Óvissa er með væntar tekjur af innleiðingunni en gert er ráð fyrir að hún geti skilað ríkissjóði auknum tekjum frá árinu 2026.

Gert er ráð fyrir auknum tekjum af veiðigjaldi með endurskoðun á lögum um veiðigjald sem skili um 2 milljörðum kr. Einnig kemur seinni áfanginn í hækkun verðmætagjalds sjókvíaeldis til framkvæmda og mun gjaldið hækka úr 4,3% í 5% af markaðsverði afurða.

Sem fyrr er gert ráð fyrir hækkun krónutölugjalda á milli ára. Vegna fyrirhugaðrar kerfisbreytingar á gjaldtöku af notkun ökutækja munu bensín- og olíugjöld falla niður. Því er umfang krónutölugjalda mun minna en áður hefur verið. Miðað er við að gjöldin hækki um 2,5% í samræmi við yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við kjarasamninga þrátt fyrir að verðbólga sé áætluð 5,2% yfir þetta ár samkvæmt þjóðhagsspá. Þetta er gert til þess að hvetja aðra til að halda sig við slík viðmið.

Við setningu útgjaldaramma fyrir málefnasvið í fjárlagafrumvarpi ársins 2025 er byggt á þeirri stefnumörkun sem fram kemur í gildandi fjármálaáætlun. Meginleiðarljós áætlunarinnar er að tryggja bætta afkomu ríkissjóðs sem felst í því að haldið er aftur af útgjaldavexti þannig að útgjöld lækki sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. Áætlað er að heildarútgjöld ríkissjóðs hækki eingöngu um 6,5 milljarða kr. eða sem nemur 0,4% að raunvirði á næsta ári. Áætlaðar launa-, gengis- og verðlagsbreytingar nema um 54 milljörðum kr. Til heildarútgjalda málefnasviða teljast heimildir vegna afskrifta skattkrafna en áætlað umfang þeirra lækkar um 18 milljarða kr. á milli ára á grundvelli breyttrar aðferðafræði við árlegt mat á eftirstöðvum krafna sem nú er talið að muni minnka afskriftarþörfina á næstu árum. Án þeirrar breytingar nemur raunaukning heildarútgjalda um 24,7 milljörðum kr. eða 1,7%.

Alla jafna er gert ráð fyrir almennu aðhaldsmarkmiði á málefnasviðum ráðuneyta í frumvarpi til fjárlaga og nemur almennt aðhaldsmarkmið á árinu 2025 um 2,2 milljörðum kr. Almenn aðhaldskrafa verður 1% á árinu 2025 en heilbrigðis- og öldrunarstofnanir, skólar og löggæsla eru undanskilin þessari kröfu. Auk almenns aðhaldsmarkmiðs er gripið til afkomubætandi ráðstafana til að draga úr útgjaldavexti og ríkisumsvifum og er gert ráð fyrir 9 milljarða kr. ráðstöfunum á útgjaldahlið til að bæta afkomu ríkissjóðs.

Í frumvarpinu gert ráð fyrir sértækum ráðstöfunum til að hægja á útgjaldavexti og skapa svigrúm til brýnna verkefna m.a. vegna aðkomu ríkisins í tengslum við kjarasamninga á almennum markaði. Í meginatriðum felast aðgerðirnar í forgangsröðun, hagræðingu eða betri nýtingu fjármuna, svo sem með frestun eða niðurfellingu verkefna sem ekki eru hafin eða hægt er að hliðra til í tíma, endurskoðun á forsendum eða fyrirkomulagi og hagræðingu í rekstri með sameiningu stofnana eða útvistun verkefna.

Meðal helstu verkefna sem fram koma í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2025 eru heildarendurskoðun örorkulífeyriskerfisins og nemur hækkun útgjalda vegna nýs kerfis 4,4 milljörðum kr. á árinu 2025 en heildarkostnaður nemur ríflega 18 milljörðum kr. á ársgrundvelli.

Umfang aðgerða stjórnvalda vegna kjarasamninga á almennum markaði er áætlað 14 milljarðar kr. á árinu 2025 og er ætlað að styðja sérstaklega við barnafólk, leigjendur og skuldsetta íbúðareigendur á tímabili samningsins en auk þess eru stofnframlög og hlutdeildarlán sem hægt er að byggja fyrir 1.000 íbúðir á ári. Í þessu felst að gunnfjárhæðir húsnæðisbóta og eignaskerðingarmörk í húsnæðisbótakerfinu eru hækkuð umtalsvert og stuðningur við barnafjölskyldur stórefldur, m.a. með gjaldfrjálsum skólamáltíðum auk hækkunar á barnabótum. Þá er gert ráð fyrir að hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyris úr 25.000 kr. í 36.500 kr. á mánuði auki útgjöldin um 2,7 milljarða kr. á næsta ári.

Áfram verður aukið við framlög til nýframkvæmda og viðhalds á vegakerfinu. Þá er uppbygging samgönguinnviða og almenningssamgangna samkvæmt uppfærðum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins aukin um 4 milljarða kr., sem er hækkun til samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins í samræmi við samþykkt fjármálaáætlunar. Framlagið er hluti af 20 milljarða kr. hækkun sem ráðgert er að dreifist yfir tímabil fjármálaáætlunar 2025–2029. Einnig er fjármögnuð aðkoma ríkisins að rekstri almenningssamganga á höfuðborgarsvæðinu um 2,2 milljarða.

Í frumvarpinu er aukinn kraftur settur í byggingu nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri sem hafði verið frestað í ár. Auk þess verða veittar fjárveitingar í tvö byggingarverkefni en það er annars vegar bygging þjóðarhallar í innanhússíþróttum og hins vegar er fjárveiting veitt til byggingar nýs fangelsis í stað Litla-Hrauns. Áætlanir gera ráð fyrir að heildarbyggingarkostnaður nemi 14,4 milljörðum kr. Á móti þessum nýju framkvæmdum vegur að gert ráð fyrir áframhaldandi frestun á byggingu nýs Stjórnarráðshúss og höfuðstöðva viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu, framkvæmdir sem áður höfðu verið ráðgerðar og fjármagnaðar að hluta.

Áfram er lögð áhersla á stuðning atvinnugreina sem styrkja eiga stoðir atvinnulífsins enn frekar á komandi árum, svo sem við kvikmyndagerð og rannsóknir, þróun og nýsköpun en framlög til þeirra verkefna eru að aukast á milli ára.

Sem fyrr eru það velferðarmálin sem vega þyngst í fjárlagafrumvarpinu. Til heilbrigðismála, félags-, húsnæðis- og tryggingamála og menntamála renna um 70% af útgjöldum ríkissjóðs eða 875 milljarðar kr. Þetta endurspeglar vel þær áherslur ríkisstjórnarinnar að búa vel að íbúum landsins með öflugri velferðarþjónustu í þágu almannaheillar.

Virðulegi forseti. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru um efnistök frumvarpsins, en um nánari umfjöllun einstakra efnisliða vísa ég í greinargerð frumvarpsins.

Að þessu sögðu mælist ég til þess að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umræðu og hv. fjárlaganefndar.