fjárlög 2025.
Forseti. Ég ætla að þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir þessa yfirferð. Samkvæmt þessu fjárlagafrumvarpi ætlar ríkisstjórnin að draga rækilega úr framlögum sem ríkið hefur allt frá árinu 2007 veitt til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða. Þetta var kjarasamningsmál á sínum tíma og þegar framlaginu var komið á með sérstökum lögum var gert ráð fyrir að það yrði varanlegt. Á mannamáli þýðir þetta að ríkið steig inn til að jafna þann aðstöðumun sem lífeyrissjóðir búa við þannig að almennir sjóðfélagar sem tilheyra stéttum þar sem örorka er algeng þyrftu ekki að bera hallann af því í formi lakari lífeyrisréttinda. Lækkun og loks niðurfelling framlagsins, sem ríkisstjórnin talar nú fyrir í fjármálaáætlun og fjárlögum, er aðgerð sem mun að óbreyttu koma harkalega niður á lífeyrissjóðum verkamanna, lífeyrissjóðum þeirra stétta sem vinna erfiðisvinnu og slítandi störf.
Forseti. Í vor var talað um að lækka þetta framlag. Nú liggur talan fyrir og ríkisstjórnin hefur reyndar ákveðið að minnka framlagið enn meira en til stóð í vor. Samkvæmt þessum fjárlögum fer framlagið úr rúmum 7 milljörðum kr. í 2,5 milljarða og allt er það gert í nafni afkomubætandi ráðstafana. Vinnandi fólk sem hefur greitt í sjóði eins og Gildi, Stapa, Festu, Lífeyrissjóð Vestmannaeyja og Lífeyrissjóð Rangæinga á að borga brúsann og þessi breyting hefur að jafnaði verið sett í samhengi við breytingar á örorkulífeyriskerfinu í vor. Er það í alvörunni kappsmál hjá þessari ríkisstjórn að borga fyrir breytingar á örorkulífeyriskerfinu með því að seilast í ellilífeyri fátækasta fólksins á Íslandi?