155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[09:50]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er gott að hefja bara umræðuna um nákvæmlega þennan hlut. Á árinu 2006 var í tengslum við kjarasamninga, þegar lífeyrissjóðakerfið okkar var innan við 1.000 milljarðar, samþykkt að ríkið myndi hjálpa þeim sjóðum sem væru með aukna örorkubyrði. Í dag erum við komin í tölu upp á 7–7,5 milljarða, milli 7 og 8 milljarða, sem ríkið greiðir inn í þetta kerfi á meðan lífeyrissjóðakerfið er farið að nálgast 8.000 milljarða. Því miður hefur það líka verið þróunin, vegna þess að menn hafa ekki tekið á þessu, að aðeins um 40% af þeim fjármunum sem ríkið er að veita í þetta kerfi fara til þeirra sjóða sem eru raunverulega með aukna byrði. 60% af upphæðinni fara til sjóða sem eru ekki með aukna byrði. Þetta er sem sagt stuðningur ríkissjóðs vegna samninga og kjarasamninga 2006 þegar sjóðirnir voru með innan við 1.000 milljarða, sem eru orðnir 8.000 milljarðar, sem er ekkert samhengi í og mikilvægt að breyta. Við höfum átt fín samtöl um það. Auðvitað vill enginn missa þessa fjármuni frá sér. Á sama tíma erum við að breyta um örorkukerfi á næsta ári, sem tekur gildi 1. september 2025 og við erum búin að samþykkja, þar sem við erum að setja um 18 milljarða úr ríkissjóði inn í þetta kerfi til að tryggja betri jöfnuð, einmitt milli sjóða og fyrir þá sem eru á örorku. Þannig að við erum í samtali við sjóðina, við aðila um það hvað sé gáfulegast. Ríkið ætlar ekki að skilja eftir þá sjóði eða það fólk sem verður fyrir meiri örorkubyrði eða þá sjóði sem bera hana. Við þurfum að taka það samtal og tryggja hvernig við gerum það og finna viðeigandi fyrirkomulag. Þess vegna er þetta samtal í gangi. En áformin eru skýr (Forseti hringir.) og ég held að það sjái allir, þegar ég teikna upp myndina eins og hún er, hversu mikilvægt er að breyta henni.