155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[09:52]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ef samtal er í gangi velti ég fyrir mér hvort það standi samt ekki til að standa við þetta vegna þess að ríkisstjórnin er búin að gera ráð fyrir að sækja 5 milljarða í þetta úrræði. En það breytir ekki þessari stöðu þótt hæstv. fjármálaráðherra setji hlutina í þetta samhengi. Það hafa komið skýrir útreikningar, til að mynda frá sjóðum eins og Gildi, sem sýna að það munar um 40.000 kr. á mánuði fyrir þessa sjóðfélaga ef þetta framlag fellur niður. Þetta er bara staðan svart á hvítu og ég treysti vel þessum útreikningum. Það að setja þetta í samhengi við stærri breytingar breytir ekki þeirri stöðu að þetta eru raunverulegar tekjur fólks sem hefur verið á lágum launum í slítandi störfum og mun líða fyrir þessa breytingu. Það er óásættanlegt fyrir flokka eins og Samfylkinguna sem starfar í þjónustu vinnandi stétta og vill einmitt að fólk sem hefur slitið sér út allt sitt líf í erfiðri líkamlegri vinnu þurfi ekki að líða fyrir það (Forseti hringir.) á sínum síðustu árum að sótt sé fjármagn í breytingar á örorkulífeyriskerfinu með þessum hætti. (Forseti hringir.) Ég hvet hæstv. ráðherra til að endurskoða þetta og finna þá aðra fjármögnun á móti.