fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ráðherrann og ríkisstjórnin eru sammála síðustu setningu formanns Samfylkingarinnar, enda erum við ekki að fara að taka þessa fjármuni af þessu fólki. Eins og ég var að útskýra þá eru 40% af þessari fjárhæð sem fara til sjóða sem eru með raunverulega aukna byrði. Gildi er einn þeirra, fjölmargir þar, og það er kannski sá sjóður sem hefur eðli máls helst notið góðs af þessu á meðan mjög margir sjóðir eru að fá greiðslur úr ríkissjóði að óþörfu að okkar mati vegna þess að það er ekki til að jafna örorkubyrði. Þeir eru með lægri örorkubyrði en meðaltalið. Þannig að þetta samtal snýst um hvað er rétt upphæð. Við ætlum ekki að skilja neinn eftir. Ríkisstjórnin er sammála hv. þingmanni um það. Það er ekki meiningin. Þess vegna förum við hluta af leiðinni og þess vegna tökum við samtalið og finnum leiðir á leiðinni til þess að framtíðin með nýju örorkukerfi geti tekið betur utan um fólk en það að ríkið sé að setja 7 milljarða inn í 8.000 milljarða lífeyrissjóðakerfi.