fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsöguna. Í fjárlagafrumvarpi hæstv. fjármálaráðherra kemur fram að drifkraftar verðbólgu séu þrír, þ.e. hnökrar á framboðshlið, þróttmikil eftirspurn og væntingar um verðbólgu. Ef við byrjum á síðasta atriðinu, væntingum um verðbólgu, og því atriði að þetta fjárlagafrumvarp er að styðja við peningamálastefnu Seðlabanka Íslands þar sem stýrivextir eru 9,25%, þá kemur fram í frumvarpinu, á mynd 2.7, þ.e. markvert aðhald í ríkisfjármálum á alla mælikvarða 2024 og 2025, að meðalmælikvarði um markvert aðhald sé minna í ár sem prósenta af vergri landsframleiðslu en það var í fyrra. Árið 2024 var aðhaldið 1,6% af vergri landsframleiðslu, í fjárlagafrumvarpi þessa árs. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs, sem er hér til umræðu, er það einungis 0,9%. Þannig að ef við myndum horfa á þetta út frá aðhaldi og hverjar væntingar til verðbólgu eru þá eru væntanlega meiri væntingar til verðbólgu núna við að lesa þetta fjárlagafrumvarp en fjárlagafrumvarp þessa árs vegna þess að aðhaldið er minna sem prósenta af vergri landsframleiðslu. Svo einfalt er það. Og það þýðir ekki að vísa til þess að það sé 27 milljarða króna aðhald. Það sem skiptir máli er prósenta af vergri landsframleiðslu. Spurningin er þessi til hæstv. fjármálaráðherra: Hvernig er hægt að halda því fram að þessi stefna styðji við peningamálastefnu Seðlabankans þó að hún geri það minna en í ár? Fer úr 1,6% af vergri landsframleiðslu í 0,9%.
Annað sem mig langar að spyrja um, ef ég hef tíma, varðar hnökra á framboðshlið. Nú kom fram í stefnuræðu forsætisráðherra og í þessu fjárlagafrumvarpi (Forseti hringir.) — ég geymi það til næsta andsvars.