155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[09:57]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að þrír megindrifkraftarnir eru hnökrar á framboðshlið, sem við sáum hér í Covid. Þá vantaði einfaldlega hluti. Það var leyst en það keyrði upp verðbólgu um allan heim og líka á Íslandi. Í kjölfarið á Covid safnaðist upp talsvert af fjármunum sem gátu ekki verið í fjárfestingum. Þá jókst eftirspurn gríðarlega. Það jafnvægi er komið á þannig að núna er það væntingaverðbólgan, sem er kannski megindrifkrafturinn hérna á Íslandi. Í öðrum löndum hefur hún fallið í ró á meðan við erum enn að kljást við hana hér en við sjáum þó til lands og það gengur ágætlega. Þetta er allt að koma, eins og maðurinn sagði.

En varðandi aðhaldið þá er, eins og hefur verið talsvert rætt, á útgjaldahliðinni um 29 milljarða aðhald og lýst sérstaklega í greinargerð í bókinni. Á móti má líka segja að aðhaldið er kannski 50 milljarðar vegna þess að á tekjuhliðinni er sennilega um 21 milljarður. Og ef maður tekur tillit til verðbólgu og þess sem er í gangi þá er aðhaldið á næsta ári um 40 milljarðar. Það er þá um 1% af landsframleiðslu sem er markvert aðhald. Umsögn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er til að mynda í þá átt að svo sé. Eins og hv. þingmaður sér í greinargerðinni eru notaðar þrjár mismunandi leiðir til að reyna að meta aðhaldið og þær sýna allar svipaða útkomu. Það skiptir ekki máli hvaða aðferð þú notar, á alla mælikvarða er aðhaldið markvert og umtalsvert og nægjanlegt í svona háu raunvaxtastigi eins og við erum komin í til að ná verðbólgu í jafnvægi, enda erum við á þeirri leið.