155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:03]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra framsöguna. Við höfum stundum rætt það hér í sal að eitt af grunngildum laga um opinber fjármál er ekki raunsæi. Það mætti kannski vera það stundum. Það sem mig langar að spyrja ráðherrann út í er raunsæi varðandi tekjuöflun til að standa undir þeim útgjöldum sem í frumvarpinu eru. Ég rifja upp að í umsögn BSRB við síðustu fjárlög var tekið saman að ófjármagnaðar skattalækkanir núverandi ríkisstjórnar væru komnar upp í 54 milljarða á ári. Það eru ekki skattalækkanir sem renna beint í vasa fátækasta fólksins í landinu okkar, síður en svo.

Forsætisráðherra gekk svo langt í gær að nánast monta sig af því hvað gengi vel að lækka skatta, hversu vel gengi að grafa undan grunni opinberra fjármála. Þannig að mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hann hafi ekki áhyggjur af því hversu mikil spennitreyja hefur verið sett utan um opinberan rekstur með því að veikja tekjustofnana á síðustu árum. Hvort það standi í alvöru ekki til að styrkja þá eitthvað á ný vegna þess að staðan eins og hún er núna er að ríkisstjórnin þarf að finna pening, þarf að finna eitthvert „kvikk fix“ með eignasölu. Hún er háð því að jafna tekjuskortinn með því að selja hlut í Íslandsbanka, part á þessu ári og annan part á næsta ári.

Þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra, vegna þess að þetta er mögulegur veikleiki á frumvarpinu sem við þurfum að skoða í fjárlaganefnd: Hvaða upphæðir vonast ráðherrann til að komi vegna sölunnar á Íslandsbanka í ríkiskassann? Ráðherrann segir nú, og ég vona að hann meini það, að bankinn verði ekki seldur nema gegn hagfelldu verði, en hvað ef það hagfelldara verð fæst ekki? (Forseti hringir.) Hvaða plön eru í gangi til að fylla það skarð sem ríkisstjórnin gæti séð á fjárlögunum ef salan á Íslandsbanka gengur ekki eftir?