155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:05]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður spyr um raunsæjar tekjuáætlanir og taldi að einhver hefði talið að það vantaði 50 milljarða í fyrra. Staðreyndin er sú að þrjú ár í röð þá höfum við skilað 100 milljarða meiri afgangi, 100 milljarða meiri tekjum, þannig að það er ekki vandamálið, hv. þingmaður. Það eru hins vegar miklar vísbendingar um það að á þessu ári séu tekjuáætlanirnar raunsærri. Það er auðvitað minni þensla, minni hagvöxtur, þannig að við erum ekki að vænta þess að tekjurnar skili sér með svona miklum hætti eins og við gerðum þrjú ár í röð. Hvað gerðum við við þá 300 milljarða sem urðu til? Við notuðum þá til þess að lækka skuldir. Það er það sama og við erum að gera með sölu ríkiseigna. Það er ekki gert í tekjuöflunarskyni til að fara með í rekstur. Þær eru seldar til að lækka höfuðstól skuldanna til að afkomubæta rekstur ríkissjóðs til lengri tíma. Það er talsvert mikill munur á þeirri aðferðafræði og því að selja eignir til að hafa í rekstur. Það væri eins og að pissa í skóinn sinn því að að lokum hefðu þeir ekkert að selja. Það er ekki stefna ríkisstjórnarinnar. Hún er að selja ríkiseignir til þess að bæta skuldastöðuna til þess að afkoman til lengri tíma styrkist og við séum ekki að greiða allt of há, himinhá vaxtagjöld til þeirra sem við skuldum.