fjárlög 2025.
Herra forseti. Síðustu ár hefur, eins og ráðherra segir, meiri hlutinn klárað fjárlög með miklum halla en svo einhvern veginn hefur það reddast með því að það hafa komið meiri tekjur í kassann en vonir stóðu til. Ég veit ekki hvort það sé samt traustasta efnahagsstjórnin, að vona að þetta reddist og það fyllist í þetta gat. Ég spurði hæstv. ráðherra um tölu, hvað hann vonist til að fá fyrir Íslandsbanka upp í þetta gat og hvað sé planið ef sú sala gengur ekki eftir. Mig langaði hins vegar líka að spyrja hæstv. ráðherra, vegna þess að það er verið að umturna eða gjörbreyta, svo að ég noti jákvæðara orð, gjaldtöku á ökutæki og eldsneyti. Það er verið að taka upp kílómetragjald á alla bíla en fella niður á móti olíugjöld og vörugjöld en hækka kolefnisgjald, þannig að það eru margar breytur í gangi. Hver verður niðurstaðan gagnvart neytanda? Verður bensínverð óbreytt eða mun það hækka á dælu? Ef þetta á að styrkja við orkuskipti (Forseti hringir.) myndi ég alla vega vilja sjá greiningu frá ráðuneytinu um það hvaða áhrif það hafi á orkuskipti, (Forseti hringir.) t.d. ef olíuverð lækkar á dælu þá held ég að það breyti ekki öllu þó að heildarútgjöld heimilisins mögulega standi í stað vegna þess (Forseti hringir.) að lægra verð á innkaupastað hefur þau sálfræðilegu áhrif að fólki finnst auðveldara að kaupa það.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir aftur á ræðutímann.)