fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Það var auðvitað röng staðhæfing hjá hv. þingmanni að meiri hlutinn hefði alltaf keyrt fjárlögin út í skurð á hverju ári með auknum halla. Það komu uppfærðar áætlanir sem gerðu það að verkum að menn gátu fjármagnað með betri hætti og fleiri hluti innan þess ramma sem aukin tekjuöflun sýndi. Það sem kom síðan á óvart eftir á var hægt að leiðrétta, bæði hagvöxt og tekjur, umtalsvert í ríkisreikningi og það mikið að það var óþægilegt en sem segir okkur að líkönin áttu kannski erfitt með að kljást við svona mikinn vöxt. Við höfum verið að skoða það og sýnist að ástæðan sé fyrst og fremst að grunngögnin sem við byggjum á og Hagstofan byggir á eru ekki nægilega góð og það er verkefni sem við erum búin að setja kraft í að bæta og skiptir miklu máli.
Varðandi Íslandsbanka þá eru forsendur algerlega óbreyttar eins og var samþykkt í frumvarpinu og fjármálaáætlun í vor og undirbúningur stendur hratt yfir. Að lokum varðandi breytingarnar á gjaldtöku vegna notkunar bíla á vegum (Forseti hringir.) þá verður það sérstakt frumvarp og við getum farið sérstaklega ofan í þá (Forseti hringir.) djúpu umræðu og ég hlakka til þess að gera það með hv. þingmanni.