155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:10]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Forseti. Af einhverri ástæðu, þrátt fyrir að ríkisstjórnin segi öll sín fjárlög ábyrg, þá hefur Seðlabankinn hækkað stýrivexti 14 sinnum í röð. Af einhverri ástæðu hafa stýrivextir verið 9,25% í meira en ár, verðbólga yfir markmiði í fjögur ár og hallarekstur á að standa í níu ár. Halli fyrir heimsfaraldur, halli eftir heimsfaraldur. Það er eiginlega alltaf faraldur í fjárlögum þessarar ríkisstjórnar. Spár gefa til kynna að markmið stjórnvalda um verðbólgu náist ekki fyrr en eftir tvö ár, haustið 2026.

Forseti. Við vitum að verðbólguvæntingar eru sérstakt vandamál og það vantar að hér heyrist skýr tónn um markmiðin til að ýta undir væntingar. Við heyrum ráðherra segja að þetta sé allt að koma en ég spyr: Hverjar eru væntingar ráðherra um áhrif þessara nýju fjárlaga á verðbólguna? Liggja fyrir töluleg markmið um árangur? Lykilspurningin er kannski: Telur ráðherra að þetta fjárlagafrumvarp hans muni stuðla að stýrivaxtalækkun hjá Seðlabankanum á næsta fundi þann 2. október?