155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:14]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get eiginlega ekki þakkað ráðherra fyrir svarið því að svarið birtist aldrei. Ég sagði að verðbólguvæntingar væru sérstakt vandamál. Ég er ráðherranum sammála um að skilaboðin skipta máli en þau þurfa líka að vera einhver. Það þurfa að heyrast skýr skilaboð og það vantar að skilaboðin heyrist. Hæstv. ráðherra segir: Þetta er allt saman að koma. Ég spyr: Liggja fyrir væntingar hans um töluleg áhrif af þessum fjárlögum? Telur ráðherra að þetta fjárlagafrumvarp hans muni hafa einhver áhrif á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans 2. október? Ég heyri hann nefna lok næsta árs. Það eru tíðindi ef það eru væntingarnar, að við séum fyrst í lok næsta árs að sjá breytingar á vaxtastigi í landinu. Það eru stór pólitísk tíðindi ef það er svarið.