155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:20]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég get upplýst hæstv. fjármálaráðherra um að hrávöruverðsmarkaðir eru fyrir löngu allir komnir undir þær vísitölur sem þeir stóðu í áður en stríðið braust út í Úkraínu. Mig langar til þess að spyrja hæstv. ráðherra aftur út í það sem sneri að 2,2 milljarða fjárveitingum til almenningssamgangna og með hvaða hætti ráðherra sér það fyrir sér að sú tala hækki þegar borgarlínan fer að aka um göturnar, þeir vagnar. Það er greinilega búið að festa ríkissjóð í þeirri ól að endursemja um það meðlag þegar sú starfsemi hefst.

Sömuleiðis langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra hvort mat hafi verið lagt á það, af þessum 100 milljarða umframtekjum sem ríkissjóður hefur notið undanfarin þrjú ár, hver áhrif verðbólgu eru á þann tekjuauka. Hversu stór hluti af þessum 100 milljörðum árlegu er til kominn hreinlega (Forseti hringir.) vegna þeirrar miklu verðbólgu sem við höfum búið við?