155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:22]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi síðustu spurninguna þá er ég nú ekki með töluna í kollinum en það er án efa stór hluti. Verðbólgan er það sem er erfitt að kontrólera í líkönunum ef þú veist það ekki nákvæmlega fyrir fram. Við vorum t.d. á árinu 2022 að búast við talsvert mikilli spennu og sáum fram á, samkvæmt opinberum gögnum, að verðbólgan væri að hækka og kannski að stefna í rúm 5% og við jukum aðhaldið á árinu 2022 til að takast á við það. Þá reyndist hins vegar í baksýnisspeglinum hagvöxturinn vera 9%, þannig að við hefðum sjálfsagt gripið til frekara aðhalds, kannski hefðu aðstæður á vinnumarkaði líka kallað það fram að menn hefðu brugðist öðruvísi við og kannski Seðlabankinn líka. En ég er ekki að kenna neinum um.

Varðandi borgarlínuna og þann hluta sem þar er þá var þetta ákvörðun um að við færum inn í, það væri 33% eignarhluti, að reka Strætó með sveitarfélögunum og það yrði með sambærilegum hætti. Það er frumvarp sem kemur væntanlega frá innviðaráðuneytinu um almenningssamgöngur í vetur á landsvísu (Forseti hringir.) og þetta er auðvitað gert til þess að auka þátt almenningssamgangna, taka þátt í að ná loftslagsmarkmiðum okkar og tryggja betri rekstur, (Forseti hringir.) en ekkert loforð um hvernig meðlagið verður í framtíðinni.