155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:24]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Forseti. Hér verða eflaust fluttar margar ræður um hina og þessa málaflokka sem fjárlögin taka á, upptalning á milljörðum hér og þar. En umræðan í dag og næstu viku snýst ekki um einstaka málaflokka. Með því ætla ég ekki að gera lítið úr mikilvægi opinberrar þjónustu og innviða en umræðan í dag þarf að snúast um samhengi hlutanna, heildarmyndina, sem skekkir allt í íslensku samfélagi, verðbólguna og vextina sem eru afleiðing af henni. Rekstur allra stofnana ríkisins mun bara þyngjast og sitja fastur í járnum ef ekki er tekið á verðbólgunni. Launin munu rýrna að raunvirði og þar með kaupmáttur fólks sem starfar hjá hinu opinbera og pressan á launaliðinn mun aukast sem og annar kostnaður. Fjárfestingar verða dýrari því að allur rekstur í hagkerfinu þyngist. Hinn almenni launamaður á íslenskum vinnumarkaði skilur ekki umræðuna um aukinn kaupmátt sem tekur ekki tillit til hlutfalls vaxtagreiðslna í bókhaldi heimilanna, hvað þá fólk á lægstu tekjunum eða ungt fólk að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði. Staða þeirra endurspeglast einfaldlega ekki í meðaltalstölum fyrir kaupmátt. Enda kemur það skýrt fram, einmitt í því fjárlagariti sem hér er til umræðu, að vaxtakostnaður ungs fólks er í hæstu hæðum í sögulegu samhengi. Stakar tölur í upptalningu breyta ekki því ástandi, forseti. Það er heildarmyndin sem þarf að taka á því, annars brestur allt hitt.

Þau fjárlög sem við ræðum hér í dag eru síðustu fjárlög þessarar ríkisstjórnar. Þetta var síðasta tækifæri þeirra til að takast á við verðbólguna og þeir ætla ekki að nýta það. Nú heyrist frá hæstv. fjármálaráðherra að þetta sé allt að koma. Hinn almenni Íslendingur spyr sig: Er þetta allt að koma? Hvað hafa þau eiginlega verið að gera öll þessi ár? Fyrir utan það, forseti, að þetta er ekki allt að koma. Sama hvernig hæstv. fjármálaráðherra og stjórnarþingmenn leika sér með tölurnar fram og til baka, vitna í aukna afkomu miðað við fyrri ár, afkomu sem fyrst og fremst hefur hlotist af aukinni verðbólguveltu sem skilar sér til ríkisins í formi tekna, verðbólgu sem við viljum ekki en ríkisstjórnin hefur notið þess að eyða — sama hvað, forseti, þá er staðan sú svart á hvítu að afkoman fyrir næsta ár, sem hér er lagt upp með, er verri en kynnt var í fjármálaáætlun í vor. Þessi staðreynd verður ekki flúin. Þau auka á hallann miðað við það sem stefnt var að í vor og kalla það viðbótaraðhald. Skýr skilaboð bárust frá Seðlabankanum í ágúst þegar ákveðið var að halda vöxtum óbreyttum í 9,25%, eftir heilt ár í hæstu hæðum; að ófjármögnuð útgjöld í tengslum við kjarasamninga og áhrifin af aðgerðum vegna Grindavíkur hefðu haft meiri áhrif á þensluna í kerfinu en við var búist. Þetta höfum við í Samfylkingunni bent á í fjölda mánaða. Samt mætir ríkisstjórnin með fjárlög sem eru meira að segja eilítið verri en lagt var upp með í fjármálaáætlun í vor, fjármálaáætlun sem þótti ekki nógu sannfærandi gagnvart hinum almenna Íslendingi og Seðlabankanum til að draga úr verðbólguvæntingum. Ríkisstjórnin heldur að það að gera ekki neitt nýtt muni skyndilega breyta aðstæðum. Hæstv. fjármálaráðherra talar um að þetta sé allt að koma. Þau ætla í engar skattahækkanir, engan niðurskurð, engar kollsteypur. Já, þau ætla bara að anda sig í gegnum þetta, sitja þetta af sér, láta þetta malla áfram á sjálfstýringu, líkt og sú stefna hafi skilað einhverjum árangri hingað til. Nei, forseti. Sú stefna er ástæðan fyrir því að verðbólgan hefur mallað í kerfinu og er nú farin að grassera. Það er ástæðan fyrir því að vanskil á öðrum lánum en húsnæði hafa nú rokið upp, ástæðan fyrir því að vaxtabyrði ungs fólks, barnafólks, eignalítils fólks, er orðin verulega íþyngjandi. Fólkið þarna úti er að kalla eftir aðgerðum, að hæstv. ríkisstjórn geri eitthvað. En hér á bara að malla í gegnum þetta.

Samfylkingin hefur ekki veigrað sér við að tala við fólk eins og það sé fólk, eins og það skilji samhengi hlutanna. Ef ekki á að fara í þjónustuskerðingu þarf að fjármagna ríkissjóð betur. Ef við ætlum að nýta fjármuni í ríkisrekstri betur þurfum við að gera hinu opinbera kleift að færa sig inn í framtíðina, fjárfesta í stafvæðingu og tækjabúnaði, og það kostar. Ef við viljum fara vel með skattfé þurfum við að vera með virkt eftirlit alls staðar. Við eigum ekki að sætta okkur við að stórar stofnanir, líkt og Sjúkratryggingar, hafi ekki getu til að fylgja því eftir hvernig farið er með fé vegna skorts á fjármagni í eigin rekstri eða vilja til að tryggja eftirlit í heilbrigðiskerfinu. Við eigum að tala fyrir innra eftirliti á stórum stofnunum, líkt og Landspítalanum. Ef við ætlum að nýta starfsfólk betur þurfum við að gera því kleift að sinna vinnunni sem það hefur menntað sig til að sinna. Heilbrigðisstarfsfólk sem dæmi sinnir aragrúa pappírsvinnu og á við vottorðafargan sem ekki hefur tekist að vinda ofan af.

Forseti. Ef við ætlum að ýta undir verðmætasköpun verðum við að velja okkur áherslur í atvinnulífinu og gjaldeyrissköpun sem eru ekki innviðafrekar. Ríkið á að hafa skoðun á framleiðni og hvernig við nýtum innviðina okkar best því að ríkið ber ábyrgð á rekstri innviðanna. En ríkisstjórnin hefur flúið þá ábyrgð rétt eins og verðbólguna. Við í Samfylkingunni höfum lagt fram aragrúa tillagna sem hafa birst í málefnavinnu okkar og útspili um heilbrigðiskerfið, um atvinnulífið, orkumál og auðlindamál og stöndum nú í vinnu um húsnæðismál. Við höfum lagt til breytingartillögur í þessum sal til að sækja tekjur þar sem þenslan er í raun og veru. En hér mun fólk mæta, sjáið þið til, með sömu gömlu grýluna um skattahækkanir á sama tíma og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar er orðið að einum umfangsmesta skatti á skuldara landsins, ekki síst ungt fólk. Ríkisstjórnin er ábyrgðaraðilinn á bak við þann kynslóðamun sem nú er að teiknast upp þar sem þeir sem eiga eignast enn meira en hinir fjarlægast í sífellu húsnæðisöryggið.

Ríkisstjórnin hefur útvistað erfiðri ákvörðun um að sækja peninga og sækja tekjur til að vinna á móti þenslu til ókjörinna embættismanna í Seðlabankanum sem sækja peningana beint til fólksins, fyrirtækjanna og bændanna í landinu, sem skulda óháð stétt og stöðu. Og hið nýjasta er að seilast í sjóði verkafólks til að borga fyrir breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Hér skortir kjark, forseti, til að gera það sem fólk er kjörið til að gera, finna hvar svigrúm er og sækja þangað fjármagnið. Fólk treystir sér ekki einu sinni til að tala fyrir fjármögnun á innviðauppbyggingu sem myndi ýta undir verðmætasköpun og framleiðni í hagkerfinu. Fólk er fast í djúpri kreddu og hefur þannig fest þjóðina í spennitreyju lágrar framleiðni, hás rekstrarkostnaðar og verðbólgu. Þessi ríkisstjórn treystir sér ekki einu sinni til að byggja eitt einasta einingahús vegna Grindavíkur. Hér hefur ekkert risið, bara fjöldi blaðamannafunda og fréttatilkynninga. Og nú eru farnar að berast tilkynningar reglulega um að embættismenn séu komnir í hinar og þessar nefndir, tilkynningar um að fólk sé í vinnunni. Sendið eitthvað frá ykkur þegar þið hafið gert eitthvað. Það er löngu orðið ljóst að grípa þarf til aðgerða á húsnæðismarkaði til að draga úr hitanum á markaði fyrir heimili fólks. Fólk sem hér býr og starfar, er hluti af okkar samfélagi, á að hafa forgang að íbúðum, ekki ferðamenn sem komast ekki að á gistiheimilum landsins. Mörkin um hvað við ráðum við í ákveðnum atvinnugreinum hljóta að miðast við að heimilum landsins sé ekki rutt út af húsnæðismarkaði. Það þarf að taka fyrir söfnun íbúða sem fjárfestingareign. Og svo: Já, það þarf að byggja.

Forseti. Ríkisstjórnin hefur brugðist í stjórn efnahagsmála og það er ekkert í þessum fjárlögum sem breytir því. Ár eftir ár hefur ríkisstjórnin einbeitt sér að því að hlaupast undan eigin ábyrgð og bent á alla aðra í stað þess að grípa til nauðsynlegra aðgerða til að ná stjórn á stöðu efnahagsmála. Þetta hefur verið mjög skaðlegt og hefur dregið úr trúverðugleika hagstjórnarinnar. Þráseta ríkisstjórnarinnar veldur skaða með þeim hætti, því miður. Við vitum öll að þegar ríkið gerir minna þarf Seðlabankinn að gera meira. Þess vegna höfum við haft þessa miklu verðbólgu og háu vexti allt of lengi. Þetta, forseti, þarf að ræða í hv. fjárlaganefnd í vetur og hlakka ég til samstarfsins.