fjárlög 2025.
Forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra athugasemdirnar en hér virðumst við strax vera dottin í það sem ég varaði við í upphafi ræðunnar: Það er auðvelt að telja upp milljarða í þessari áætlun og það er enginn að gera athugasemd við ýmislegt gott sem er að gerast í rekstri ríkisins. En það á ekki að hreykja sér af því að við séum að halda ákveðnum hlutum í horfinu. Það er verið að gera athugasemdir við jafnvægi og heildarsamhengi hlutanna sem snýr að fjármögnun. Það er svo ofboðslega auðvelt inni í þessum sal að fría sig ábyrgð þegar kemur að því að finna leiðir til að fjármagna ákveðna hluti því að það er bara talað um hvað þú ætlar að gefa öðru fólki en ekki hvað það kostar. Það er ástæðan fyrir því að við erum í þessu ástandi í dag með verðbólguna og vextina, vegna þess að fólk treystir sér ekki til að vera hreinskilið við fólk þarna úti um að það kostar að ráðast í ákveðnar aðgerðir. Þetta er nákvæmlega ábyrgðarleysið, forseti, sem hér hefur verið varpað fram m.a. af hálfu Samfylkingarinnar.
Mig langar til að grípa sérstaklega eitt sem hæstv. fjármálaráðherra sagði, að fjöldi fólks væri nú að rata inn á húsnæðismarkaðinn í sína eigin eign með stuðningi foreldra. Það hafa aldrei jafn margir fengið fyrir fram greiddan arð hlutfallslega og á síðustu árum. 10% hæstu aðilarnir á tekjuskalanum og eignaskalanum, ef það er sett í það samhengi, eru í auknum mæli að arfleiða börnin sín að sínum auði. Oft er þetta fólk sem á kannski ekki mjög mikið en á hins vegar eitthvað til að gefa af sér. Og ég spyr: Erum við sátt við það hér í þessum sal að það hverra manna þú ert sé farið að ákveða þitt lífshlaup? Við vitum alveg að ráðstöfunartekjur fólks eftir húsnæði eru mjög mismunandi, eftir því hvort þú leigir eða átt. Þetta er stefnan sem stjórnvöld hafa alið á.