fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Hvort ætlum við að ræða stóru myndina eða einstök mál? Hv. þingmaður sagði að ríkisstjórnin hefði ekki gert neitt. Ég taldi bara upp þær aðgerðir sem við gerðum í tengslum við kjarasamninga og erum að fjármagna um 14 milljarða inn í næsta ár. Við erum hins vegar í stóru myndinni að draga úr útgjöldum, það er aðhald útgjaldamegin upp á 29 milljarða. Tekjurnar eru að aukast um 21 milljarð. Aðhaldið er þá, getum við sagt, 50 milljarðar á næsta ári og að teknu tilliti til verðbólgu og slíkra þátta er 40 milljarða aðhald í þessum fjárlögum. Tekjurnar eru með öðrum orðum að vaxa hægt og rólega og útgjöldin eru að minnka hægt og rólega, engar kollsteypur. Við tryggjum þannig að atvinnuþátttakan haldist við, þessi háa atvinnuþátttaka, að það komi ekki atvinnuleysi. Við erum að ná mjúkri lendingu. Við erum að ná þessu. Ég er hins vegar sammála hv. þingmanni um að það eru húsnæðismálin sem við þurfum að fókusera á. Ég nefndi það bara sem staðreynd að allir hópar ungs fólks, líka í lægstu tekjutíundunum, eru að eignast nýtt húsnæði, séreignarhúsnæði, líka þeir, sá hópur hefur líka hækkað. Er það rétt stefna að foreldrar eða aðstandendur sem hafa á liðnum árum hagnast verulega á því að húsnæðisverð hafi hækkað vegna þess að kaupmátturinn hefur vaxið mikið skili þessu til sinna barna? Nei, við viljum hafa heilbrigðara fyrirkomulag og það er verkefnið sem við þurfum að ræða. En ég er bara segja að staðreyndin er þessi, að það hefur sjaldan verið hærra hlutfall af ungu fólki sem hefur tekist á síðustu misserum að eignast sitt eigið húsnæði, þrátt fyrir þetta háa vaxtastig. Ég sé að einstaka þingmenn hrista höfuðið en þetta eru staðreyndir sem við drögum út úr gögnunum. Við verðum þá að rengja gögnin. Þau sýna þetta alveg svart á hvítu. Þannig að ég einfaldlega segi: Tökum umræðuna í stóru myndinni, förum ekki niður í skotgrafir. Þegar því er haldið fram að ríkisstjórnin hafi ekki gert neitt þá eru menn að segja að þessir 40 milljarðar og 44 milljarðar á yfirstandandi ári hafi ekki skipt máli í þessi fimm eða sex verkefni til stuðnings ungu barnafólki. (Forseti hringir.) Ég er ósammála því. En við þurfum að lækka verðbólguna og vextina, það er lykilatriðið.