fjárlög 2025.
Forseti. Það er enginn að segja að ríkisstjórnin hafi ekki gert neitt. Hér er verið að tala um að það sé ekki neitt nýtt að eiga sér stað frá því að áætlanir voru lagðar fram í vor, sem leiddu ekki af sér lækkun verðbólguvæntinga og lækkun vaxta. Það er það sem er verið að halda fram hér. Það sjá allir þessar upptalningar, við fáum öll þessar fréttatilkynningar og við vitum alveg að það er ýmislegt í gangi en það er augljóslega ekki nóg og það er það sem er verið að gera athugasemd við.
Ég ætla líka að grípa niður í umsögn fjármálaráðs um fjármálaáætlun í vor, fjármálaáætlun sem, ef við miðum við þetta fjárlagaár sem hér er til umræðu, tekur í rauninni takmörkuðum breytingum nema að því leyti að hallinn er að aukast. Með leyfi forseta:
„Svo virðist sem brugðist sé við aukinni skuldastöðu […] með sölu eigna, en það eru einskiptisaðgerðir sem taka ekki á undirliggjandi rekstri […] Stöðvun ófjármagnaðra útgjalda og/eða aukin tekjuöflun eru forsenda þess að markmið um stöðugleika og sjálfbærni, þ.m.t. lækkun verðbólgu og vaxta, gangi eftir.“
Þetta eru aðilar sem hæstv. ríkisstjórn er með í vinnu til að ráðleggja sér um framgang efnahagsmála. Hvernig væri, þó að hæstv. fjármálaráðherra vilji ekki hlusta á stjórnarandstöðuna, að hlusta á þessa sérfræðinga? Það liggur alveg fyrir að það vantar eitthvað upp á. Hvernig væri bara að viðurkenna í staðinn fyrir að láta eins og ekkert sé að það sé einhver ástæða fyrir því að hér erum við enn þá með þetta vaxtastig?
Varðandi fjármögnun á kjarasamningsúrræðunum þá ætla ég ekki að fara í smáatriðum út í það. Það er hægt að finna þetta í ræðum eftir mig frá því í vor, að það er margt mjög furðulegt við hvernig sú fjármögnun var sótt. En mig langar að taka fram, og það þarf ekki annað en að skoða opinber gögn frá HMS, að það er mikill fjöldi af lögaðilum og aðilum sem er að kaupa sér íbúð nr. tvö, þrjú, fjögur sem er að fara núna inn á markaðinn, m.a. út af getuleysi ríkisstjórnarinnar til að standa við hlutdeildarlán sem gerir það að verkum að þessir aðilar eru núna að drífa sig inn á markaðinn og kaupa íbúðir (Forseti hringir.) sem voru upphaflega byggðar fyrir unga fólkið í landinu. Það er eitthvert misræmi hérna.