155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:43]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni prýðisgóða ræðu. Það var eitt atriði sem kom fram hjá hv. þingmanni þar sem þingmaðurinn gagnrýndi núverandi ríkisstjórn fyrir að heykjast á því að sækja tekjur til handa ríkissjóði þangað sem svigrúm væri til. Mig langaði til að spyrja hv. þingmann hvort það liggi fyrir sýn frá þingmanninum eða flokki hennar á hver viðbótarþörfin fyrir auknar skatttekjur væri í heildina að öðru óbreyttu bara í þessum tilteknu fjárlögum. Eru þetta einhverjir stakir milljarðar eða tugir milljarða sem Samfylkingin sér fyrir sér að skynsamlegt væri að auka heildarskattheimtu um?