fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Þetta er bara allt að koma, sagði fjármálaráðherra við kynninguna nú í vikunni. Þetta er allt að koma. Og hvað er það sem er að koma? Þetta er ekki jólasveinafjárlagafrumvarp sagði hæstv. fjármálaráðherra. Það má segja að þetta sé eins konar aðventufrumvarp, frumvarp þar sem lifað er í voninni um það að stýrivextir og verðbólga í landinu fari lækkandi, lifað í voninni um að Seðlabanki Íslands hafi náð að keyra verðbólguna niður með hæstu stýrivöxtum í Evrópu, hæstu stýrivöxtum í hinum vestræna heimi. Það eru fjögur lönd í Evrópu sem eru með hærri stýrivexti. Það eru Rússland, Úkraína, Hvíta-Rússland eða Belarús og Tyrkland. Svo kemur Ísland með 9,25% stýrivexti. Spurningin er þessi: Hvenær er þetta að koma? Hvenær á það að gerast og hvernig? Við vitum það ekki.
Drifkraftar verðbólgu, eins og segir í fjárlagafrumvarpinu, eru þrír. Það eru hnökrar á framboðshlið, þróttmikil eftirspurn og væntingar um verðbólgu. Ef við tökum síðasta atriðið, væntingar um verðbólgu og hvernig þetta fjárlagafrumvarp mun slá á væntingar um verðbólgu, þá er alveg augljóst mál að það gerir það ekki, ekki á nokkurn hátt. Það eru þveröfug áhrif sem það hefur. Af hverju segi ég það? Ég segi það vegna þess að aðhaldið í ríkisfjármálum er 0,9% af vergri landsframleiðslu í þessu fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár en í síðasta fjárlagafrumvarpi sem var fyrir þetta ár var það 1,6%. Það er minna aðhald um 0,7%. Það slær ekki á væntingar um verðbólgu. Það eykur verðbólguvæntingar. Minna aðhald eykur verðbólgu og það er verið að gera það hér um 0,7% ef við tökum það nákvæmlega samkvæmt töflu 2.7 á bls. 111 í fjárlagafrumvarpinu. Þetta frumvarp er ekki að sýna nægilegt aðhald til að slá á verðbólguna, svo mikið er víst.
Kíkjum á hnökrana á framboðshliðinni og hina þróttmiklu eftirspurn eftir húsnæði sem er hér í landinu vegna þess að íbúum í landinu hefur fjölgað um 15% frá árinu 2017 samkvæmt stefnuræðu forsætisráðherra, 15% íbúafjölgun, ein mesta íbúafjölgun í hinum vestræna heimi. Annað sem hefur gerst er það að við höfum orðið fyrir stórkostlegu áfalli vegna náttúruhamfaranna á Reykjanesskaga þar sem 1.200 íbúðir hafa horfið af íbúðamarkaðnum. Við erum bæði með 15% íbúafjölgun og 1.200 íbúðir sem hurfu á einni nóttu. Hvað er ríkisstjórnin að gera þar? Jú, hér í fjárlagafrumvarpi næsta árs er lagt til stofnframlag upp á 7,3 milljarða kr. Hvað var það í ár? 7,3 milljarðar kr. Nákvæmlega sama fjárhæð. Það er ekki verið að auka í neitt þar þrátt fyrir að 1.200 íbúðir hafi horfið af markaðnum. Ríkissjóður segist ætla að styðja við byggingu 1.000 íbúða á næsta ári með stofnframlögum. Hvað er það þegar Grindvíkingar missa 1.200 íbúðir? Það vantar 200 íbúðir upp á. Það skortir 200 íbúðir sem ríkið þyrfti að koma með. Þá er ekkert verið að taka á þessari 15% íbúafjölgun í landinu, ekki neitt. Ríkissjóður stendur ekki í lappirnar þegar kemur að skorti á íbúðum vegna bæði 15% íbúafjölgunar og þessara 1.200 íbúða sem hurfu frá Grindavík. Við erum ekki að halda í við þetta og það er alveg augljóst mál að ríkissjóður er ekki að gera nægilega mikið til þess að koma í veg fyrir hnökra á framboðshlið vegna íbúða. Það er ekki að gera nægilega mikið. Það er ekki að koma til móts við þessa þróttmiklu eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði vegna 15% íbúafjölgunar og vegna þess að 1.200 íbúðir hurfu í Grindavík, svo mikið er víst.
Það er alveg augljóst mál að fasteignamarkaðurinn mun halda áfram að keyra verðbólguna upp, við munum áfram halda í verðbólguna. Í dag er verðbólgan 6%, án húsnæðisliðarins er hún 3,6%, þannig að 2,4% verðbólgunnar eru vegna húsnæðisliðarins og það mun halda áfram ofan á hitt þannig að við erum ekki að fara að sjá verðbólgu lækka ef við horfum á húsnæðismarkaðinn, svo mikið er víst. Við munum alltaf horfa fram á það og það kæmi mér ekki á óvart að þessi liður myndi hækka, þ.e. húsnæðisliðurinn í verðbólgunni muni hækka úr 2,4% og fara jafnvel upp fyrir 3% vegna skorts á húsnæði vegna íbúafjölgunar og vegna þess að við höfum ekki komið nægilega á móts við þann skort á íbúðum sem orðið hefur vegna þess að íbúar Grindavíkur hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Það mun ekki slá á verðbólguna.
Annað atriðið lýtur að útgjöldum. Ríkissjóður hefur sett 80 milljarða í aðgerðir vegna hamfaranna á Reykjanesi. En þetta er að mestu ófjármagnað. Það kom einungis skattaleg tillaga í fyrsta frumvarpinu sem við keyrðum í gegn á einum degi frá klukkan hálftvö eftir hádegi til kl. 11 um kvöldið. Þá var settur skattur á fasteignaeigendur á einum degi. Annað hefur ekki verið fjármagnað með auknum tekjum ríkissjóðs. Þannig að þetta er ófjármagnað. Það er tekið lán hjá Þróunarbanka Evrópu upp á 25 milljarða og svo er treyst á guð og lukkuna. 80 milljarðar þar. Kjarapakkinn upp á 13 milljarða sem er spýtt út í samfélagið er líka ófjármagnaður. Í ár á að redda sér með 10 milljörðum frá Landsvirkjun og svo á næsta ári á að gera þetta með því að fresta upptöku nýs örorkukerfis til 1. september. Það á að redda 10 milljörðum. 3 milljarðar eiga síðan að reddast líklega með venjulegu aðhaldi, geri ég ráð fyrir. Við erum þannig bæði með skort á íbúðum, minna aðhald og svo er ekki verið að fjármagna rétt þau útgjöld sem hafa verið að koma til vegna kjarapakka og Grindavíkur. Ég get ekki séð að þenslan í samfélaginu sé að fara að minnka þegar við horfum á þessi atriði, svo mikið er víst.
Spurningin sem hér er undir er þessi: Hverjir eru það sem greiða fyrir verðbólguna? Hvaða stéttir í samfélaginu eru að greiða fyrir baráttu Seðlabankans gegn verðbólgunni með fáránlega háum stýrivöxtum? 9,25% stýrivextir. Það sýnir að fjármálastjórn ríkisins er algerlega að bregðast þegar kemur að baráttunni gegn verðbólgunni. Þeir eru frekar að bæta í. Þeir eru ekki að gera nægilega mikið í húsnæðismálum og sýna ekki fram á tekjur á móti þegar peningum er dælt út í hagkerfið. Aðhaldið er að minnka úr 1,6% af vergri landsframleiðslu í 0,9%. Það er ekki verið að gera neitt þar, heldur öfugt. Það að stýrivextir í ár séu 9,25%, þeir allra hæstu í öllum hinum vestræna heimi, sýnir hvernig ástandið er, það sýnir hversu fáránlegt þetta er. Ef við skiljum þetta ekki þá þurfum við nánast að tala við útlendinga til að átta okkur á því hversu galnir þessir stýrivextir eru. Það hrista allir hausinn þegar talað er um þetta.
En hverjir eru það sem greiða kostnaðinn af þessum 9,25% stýrivöxtum? Jú, það er lágtekjufólk, millitekjufólk sem er með húsnæðislán. Það bitnar mest á þeim. Og hvað eru þessir hópar að reyna að gera til að bjarga sér? Jú, þeir flýja undan þessu og fara í verðtrygginguna. Það er sennilega ein ástæðan fyrir því, vextirnir séu svo háir að fólk flýr í verðtrygginguna til að sleppa undan öxinni af stýrivöxtunum.
Það er alveg augljóst mál að á þessum tímum á sér stað ein mesta eignatilfærsla í Íslandssögunni. Þessi eignatilfærsla finnst hjá fólki sem lendir undir öxinni af 9,25% stýrivöxtunum, það er að borga skatt. Þetta er skattur á þjóðina. Skattur á lágtekjufólk og millitekjufólk, venjulegt fólk sem er að koma sér þaki yfir höfuðið og borga af húsnæðislánum. Hvert fara þessir peningar? Jú, þeir fara til fjármagnseigenda. Það er það sem hefur átt sér stað. Það er eignatilfærsla, ein mesta eignatilfærsla í sögunni. Eins og kom fram hér áðan eru fjármagnseigendur núna að kaupa aðra, þriðju eða fjórðu íbúð sína á markaðnum til að tryggja sig til lengri tíma, tryggja verðmæti síns fjár til lengri tíma. Vissulega búa þeir við stórkostlega háa vexti. En það er alveg augljóst mál að verð á fasteignamarkaði er ekki að fara að lækka þegar fjármagnseigendur koma inn og eru að kaupa upp allt húsnæði sem hvorki ungt fólk né venjulegt fólk getur keypt vegna hás íbúðaverðs. Það er leiguliðavæðing að ganga yfir á Íslandi í skjóli þess að allir þurfa þak yfir höfuðið og það er ekki hægt að treysta á markaðinn. Það er ekki hægt að gera það. Íslenska ríkið þarf að koma með sterkum hætti inn á fasteignamarkaðinn líkt og gerðist í júnísamkomulaginu 1964 þegar íslenska þjóðin komst loks úr bröggunum með byggingu Breiðholtsins. (Forseti hringir.) Við þurfum að gera eitthvað svipað núna en það er ekki verið að gera neitt. Það verkefni bíður næstu ríkisstjórnar og við erum öll að bíða eftir næstu kosningum. Það er það sem er að koma, næstu kosningar, og við skulum vona að þær verði sem fyrst.