155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:57]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er mikilvægt þegar við tölum hérna í þessum ræðustól að við tölum með ábyrgum hætti og það er alveg eðlilegt að hver þingmaður tali frá sínum sjónarhóli og sinni stöðu og það er ekkert óeðlilegt að stjórnarandstaðan teikni hér upp einhverja aðra mynd heldur en við sem erum í ríkisstjórn og byggjum á opinberum gögnum og leggjum fram gögn. En það er hins vegar ábyrgðarhluti að tala til að mynda um væntingar. Það er rétt hjá hv. þingmanni að drifkraftar verðbólgu eru fyrst og fremst þrír. Við höfum farið í gegnum þá alla. Við erum núna fyrst og fremst að glíma við verðbólguvæntingar sem ég hef trú á að fari hratt lækkandi og ég hef ekki bara trú á því, ég hef séð gögn um það. Þó að skoðun hv. þingmanns sé þessi þá er það engu að síður mat annarra utanaðkomandi aðila, eins og í mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Seðlabankans á fjármálaáætlun, að það sé nægjanlegt aðhald. Ég nefndi það hér fyrr í dag að aðhaldið sem birtist á útgjaldahliðinni sé um 29 milljarðar þar sem við getum forgangsraðað til nýrra verkefna og varið mikilvæg kerfi og farið í verkefni sem eru brýn og þá er aðhaldsstigið á tekjuhliðinni sennilega um 21 milljarður eða 50 milljarðar allt í allt. Það er það sem er að birtast í þessu fjárlagafrumvarpi að teknu tilliti til hagvaxtarstöðunnar. Þá má meta það og við metum það í fjármálaráðuneytinu sem 40 milljarða. Það er eins og hv. þingmaður segir, kannski um 1% eða 0,9% af vergri landsframleiðslu. Það er markvert aðhald í alþjóðlegum samanburði og sögulegu samhengi. Það finnst öllum þeim sem dæma um þetta, öðrum en hv. þingmanni. (Forseti hringir.)

Ég spyr hv. þingmann: Hvaða áhrif telur hann að hans tal hafi á verðbólguvæntingar fólks? (Forseti hringir.) Hlustar það meira á hans skoðun en mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Seðlabankans?