155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:59]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir andsvarið. Það sem ég var að benda á í ræðu minni var það að markvert aðhald í ár er 1,6% af vergri landsframleiðslu. Í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir markverðu aðhaldi upp á 0,9%. Markvert aðhald er að minnka um 0,7%. Það er það sem ég er að benda á. Þessi lækkun í markverðu aðhaldi slær ekki á verðbólguvæntingar. Það segir öllum að það verði minna aðhald á næsta ári í fjármálum ríkisins, 0,9% en er í ár 1,6%.

Ég gleymdi líka að benda á að það er halli á ríkissjóði, 41 milljarður samkvæmt þessu fjárlagafrumvarpi og það er ekki til þess að slá á verðbólguvæntingar. Ef þú tekur aðhaldið og hallann þá ertu kominn með verðbólguvæntingar sem fara ekki minnkandi. Annað er líka, sem ég lagði mikla áherslu á í ræðu minni, húsnæðismarkaðurinn. Ég vil meina það að ríkissjóður sé ekki að koma nægilega sterkt inn á húsnæðismarkaðinn. Stofnfjárframlög eru 7,3 milljarðar í ár og verða það á næsta ári líka. Við verðum að horfa á það að í Grindavík voru það 1.200 íbúðir, eins og kom fram í stefnuræðu forsætisráðherra, sem hurfu vegna náttúruhamfaranna. Það hefðum við átt að bæta strax. Það hefðum við átt að gera með einingahúsum eins og var gert vegna hamfaranna í Vestmannaeyjum 1973. Vissulega fóru ekki einingahús til Vestmannaeyja, eðlilega, en þetta ættum við að gera núna, kaupa þau og flytja inn til landsins svo að Grindvíkingar geti fengið húsnæði á sama atvinnusvæði; Þorlákshöfn, Stokkseyri, Keflavík og þar sem þeir óska þess að búa. Það er það sem við þurfum að gera og gera það strax. Við getum ekki beðið lengur. Við getum ekki horft á 15% íbúafjölgun og líka áfallið í Grindavík án þess að koma sterk inn á húsnæðismarkaðinn og þá höfum við fordæmi í sögunni. Það var gert í júnísamkomulaginu 1964. Það er að tala með ábyrgum hætti. (Forseti hringir.) Mér finnst þetta frumvarp ekki gera það nægilega þegar kemur að framboðshlið, eftirspurn og verðbólguvæntingum.