155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:04]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir seinna andsvarið. Ég er að kalla eftir því að ríkissjóður fari í aðgerðir til að ná niður vaxtastigi í landinu. Það er alveg augljóst mál að það er ekkert samfélag í hinum vestræna heimi sem býr við markaðshagkerfi sem getur lifað af 9,25% stýrivexti. Ekkert. Það var gjaldþrot hérna uppi á Akranesi, Skaginn 3X. Ein af orsökum þess að það fór á hausinn var talin vera hátt vaxtastig. Það eru hópar í samfélaginu, lágtekjufólk og millitekjufólk, sem ráða ekki við þetta vaxtastig. Lítil fyrirtæki fara ekki í fjárfestingu með 9,25% stýrivexti, þau gera það ekki. Það er hörð lending. Það er það sem er vandamálið. Ríkissjóður þarf að einblína á að ráðast að rótum vandans. Verðbólga í dag er 3,6% án húsnæðisliðarins, 6% með húsnæðisliðnum. Ég er svo sannarlega tilbúinn til þess sem þingmaður og sem nefndarmaður í fjárlaganefnd að taka þátt í því samtali sem hæstv. fjármálaráðherra sagðist vera til í, að ráðast betur að rótum vandans þegar kemur að húsnæðismarkaði. Það er stóra málið.

Stóra málið líka er fjármálavæðing húsnæðismarkaðarins og það að markaðurinn eigi að leysa þetta. Það er markaðsbrestur í húsnæðismálum landsmanna. Það varð markaðsbrestur vegna stórkostlegrar fjölgunar og svo bætist Grindavík ofan á. Við erum ekki enn þá búin að leysa húsnæðisvandann þegar drifkraftur verðbólgunnar í ár virðist vera húsnæðisliðurinn. Það er það sem býr til þessa 6% verðbólgu. Við værum í ágætismálum með 3,6% verðbólgu. Þá værum við alveg örugglega ekki með 9,25% stýrivexti.

Það er líka eitt sem við þurfum að horfa á og það er hvort núverandi fjármálakerfi virki þegar stýrivextir eru svo háir. Það þarf að taka húsnæðisliðinn út úr verðbólgunni og það þarf líka að afnema verðtrygginguna. Það er eignaupptaka af fólki. Fólk er að flýja háa stýrivexti yfir í verðtryggingu sem þýðir eignaupptaka á hverju ári. Hvernig á þessi eignaupptaka sér stað? Jú, hún á sér stað með því að höfuðstóll lánanna hækkar. (Forseti hringir.) Þú ert raunverulega að taka nýtt lán á hverju ári þegar höfuðstóllinn hækkar. (Forseti hringir.) Það er það sem er vandamálið. Við eigum að ráðast að rótum vandans og það á að byrja á húsnæðismarkaðnum og ná niður stýrivöxtum strax, ekki bara segja að þetta reddist.