155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:07]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Forseti. Við ræðum hér frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2025. Ég vil byrja mína ræðu á að líta til baka til síðustu fimm ára, ræða stóru myndina áður en þáverandi heimsfaraldur gerði vart við sig í samfélaginu, til ársins 2019. WOW air féll í lok mars það ár. Í byrjun árs 2019 sá enginn fyrir í gegnum hvaða þrautir við værum að fara næstu árin, hvað væri í vændum. Ríkissjóður stóð mjög vel á þessum tíma. Skuldir voru lágar, lækkuðu ár frá ári, og við vorum að lækka tekjuskatt og tryggingagjald. Við vorum að ráðast í hvetjandi aðgerðir til orkuskipta, styðja við húsnæðismál og efla nýsköpun og rannsóknastarf. Góð staða ríkisfjármála gaf tækifæri til að ráðast í kröftuga uppbyggingu, m.a. nýs Landspítala. Við vorum að lengja fæðingarorlofið úr níu mánuðum í tíu og síðar í 12. Ríkið var rekið á pari. Árið eftir, 2020, kom heimsfaraldurinn. Við ákváðum að standa með fólkinu landinu og gera frekar meira en minna. Var það rétt ákvörðun þegar horft er í baksýnisspegilinn? Gerðum við of mikið? Það kann vel að vera á einhverju sviði. Það er bara hægt að segja til um það eftir á hvað var hæfilega mikið. Hvað hefði gerst ef við hefðum gert of lítið? Lítil fjölskyldufyrirtæki um allt land hefðu þurft að leggja upp laupana, atvinnuleysi væri líklega talsvert og lífskjör mun verri, viðskipta- og ráðningarsambönd hefðu tapast í meira mæli og eignirnar sem litli maðurinn byggði upp væru að safnast á fárra hendur. Það hefði verið samfélaginu mjög dýrt að fara í gegnum svipaðar afleiðingar af efnahagsáföllum heimsfaraldurs og áttu sér stað í kjölfar bankahrunsins.

Ég veit ekki betur en að í vinnu okkar í fjárlaganefnd og í umræðum hér í þingsal síðla vetrar og vorið 2020 þegar unnið var að fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025 hafi verið þverpólitísk samstaða um þær aðgerðir sem farið var í í tengslum við Covid-19, þverpólitísk samstaða. Það er rétt að rifja þetta hér upp því að það verður að segjast að það fennir hratt í sporin hjá minni hlutanum nú þegar við ræðum fjárlögin fyrir næsta ár. Það er engin umræða um það sem hefur gerst á síðustu fimm árum; fall WOW air 2019, heimsfaraldurinn í mars 2020, innrás Rússa í Úkraínu í seinni hluta febrúar 2022 og þær náttúruhamfarir sem hófust í Grindavík og nágrenni 10. nóvember í fyrra með harðri jarðskjálftahrinu.

Herra forseti. Ástæðan fyrir því að hægt var að spyrna kröftuglega við þeirri alvarlegu stöðu sem blasti við okkur þegar heimsfaraldur Covid-19 gekk yfir var að hér hafði verið mótuð efnahagsstefna af hálfu ríkisstjórnarinnar sem gekk út á að byggja viðnámsþrótt gagnvart áföllum. Hér er rétt að halda því einnig til haga að heimilin höfðu gert slíkt hið sama. Rúmur gjaldeyrisforði, afar sterk erlend eignastaða þjóðarbúsins, studd af afgangi af viðskiptajöfnuði, ábyrg ríkisfjármálastefna, vel fjármagnað bankakerfi og skynsamlegar þjóðhagsvarúðarreglur sem setja skuldsetningu skorður voru mikilvægar forsendur þess að hægt var að verja efnahagsreikninga fyrirtækja og heimila í gegnum áföll síðustu ára. Það er einnig rétt að rifja upp að hér í þinginu voru samþykktir fimm fjáraukar árið 2020. Það var hægt vegna þess að ríkissjóður stóð vel. Það er engin spurning um það að mikilvæg skref höfðu verið tekin árin áður við niðurgreiðslu skulda. Skuldahlutföllin voru orðin mjög viðunandi á þeim tímapunkti. Sem betur fer erum við á allt öðrum stað nú þegar við ræðum fjárlög 2025. Skuldahlutföllin fóru sem betur fer aldrei í þær hæðir sem gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun sem lögð var fram í mars 2020 fyrir árin 2021–2025. Í þeirri fjármálaáætlun var gert ráð fyrir því að skuldahlutföllin árin 2025 yrðu rúm 50%, 52% ef ég man rétt. Á næsta ári, í þessum fjárlögum, erum við að tala um skuldahlutföll upp á 31%. Þar er gríðarlegur munur á. Umræðan hér væri allt önnur og allt sem viðkemur fjárlögunum ef sú staða hefði komið upp.

Það er stutt síðan við ræddum fjármálaáætlun 2025–2029. Það voru góðar umræður og ég var mjög ánægður með nefndarálit fjárlaganefndar. Ég var einnig ánægður með umsagnir sem okkur bárust. Fjármálaráð benti á að staða opinberra fjármála og efnahagslífs á Íslandi væri góð í samanburði við flest önnur lönd Evrópu, að fjölbreytni atvinnulífs hefði aukist, kaupmáttur vaxið og atvinnuleysi væri lágt, að jöfnuður væri mikill og lífskjör almennt með því besta sem þekkist meðal nágrannaþjóða okkar. Helsta gagnrýnin var að útgjaldastig væri hátt. Við því höfum við verið að bregðast, sumir segja ekki nægilega hratt, ég væri sjálfur til í að gera það hraðar. En það má ekki heldur gleyma því að yfirgnæfandi meiri hluti útgjaldavaxtarins frá 2017, 93%, stafar af verðlags- og launahækkunum. Þá komum við að því sem við Sjálfstæðismenn höfum talað fyrir í langan tíma, því sem bæði fjármálaráð og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa mælt með, því sem meiri hluti fjárlaganefndar lagði áherslu á í nefndaráliti með fjármálaáætlun 2025–2029, útgjaldareglunni. Það var ekki í fyrsta skipti sem meiri hlutinn hefur bent á mikilvægi þess að skoða það. Það er mikilvægt að við tökum þessa umræðu um útgjaldareglu af alvöru. Það væri jákvætt ef minni hlutinn væri til í að vinna með okkur og sýna þar á borði að þeim sé alvara. Í umræðuskýrslu sinni um fjármálareglur bendir fjármálaráðuneytið á að útgjaldaregla stuðli bæði að sjálfbærni og stöðugleika auk þess að vera tiltölulega einföld í framkvæmd. Núverandi afkomuregla hefur þann ókost að hún veitir ekki leiðsögn í uppsveiflu. Útgjaldareglan myndi setja útgjöldum þær skorður að þau yxu ekki hraðar en sem nemur vexti verðmætasköpunar til langs tíma. Ég vil að við látum verða af þessu í vetur.

Herra forseti. Mig langar einnig að ræða hér annað mál sem stendur mér nærri. Það er séreignarsparnaðarleiðin svokallaða þar sem við leyfum fólki að nota séreignarsparnaðinn sinn til að greiða niður húsnæðislán. Það er oft talað um að hafa ekki öll eggin sín í sömu körfu. Að lokinni starfsævi er mikilvægt að eiga ekki bara lífeyrissparnað. Það er gott að eiga sitt húsnæði. Það er enn þá betra ef maður hefur einnig fjárfest í hluta- eða skuldabréfum og er þannig með þrjár körfur. Það er skynsamlegt að leyfa fólki að nýta séreignarsparnaðinn áfram til að borga inn á húsnæðislánin. Við höfum fyrstu fasteign sem engin áform eru um að breyta en þeir sem hafa fengið að nýta þessa leið undanfarið ættu að fá a.m.k. tíu ár líkt og þeir sem kaupa fyrstu fasteign. Við getum einnig rætt að lengja í báðum úrræðum en ég tel ekki skynsamlegt að láta úrræðið renna sitt skeið.

Frú forseti. Að lokum verð ég að koma inn á stöðuna í dag. Afkoman er að batna milli ára. Að raunvirði eru útgjöld að standa í stað þótt aðrir reyni að segja annað. Ríkið er fimmta árið í röð að minnka í hlutfalli við stærð hagkerfisins. Jú, áætlaður halli er 41 milljarður. Það má ekki gleyma því að lögum samkvæmt þarf að gera fjárlög í samræmi við þjóðhagsspá. Hagvexti og þar með afkomu ríkissjóðs hefur verið vanspáð undanfarin ár. Við höfum ítrekað séð tugmilljarða betri afkomu en við höfum verið að ræða þegar lögð er fram fjármálaáætlun eða fjárlög næsta árs. Ég vil að afkoma ríkissjóðs verði réttum megin við núllið árið 2025. Það getur vel verið að þessi fjárlög séu til þess fallin að tryggja það ef hagvöxtur verður enn og aftur meiri en áætlað er. Ég ætla ekki að fullyrða neitt um það að svo stöddu en ég bendi á þetta, frú forseti, því að það eru ekki áætlanir sem skipta máli, það er útkoman og útkoman hefur ítrekað verið mun betri en áætlanir.

Mig langar að koma rétt undir lokin að því að þau haggögn sem hefur verið unnið eftir í vinnu fjárlaganefndar hafa valdið mér töluverðum áhyggjum. Á þessu tímabili sem við erum að ræða í fjármálaáætlun hér, t.d. í fjárlögum fyrir 2022 gerði þjóðhagsspá Hagstofunnar í nóvember 2021 ráð fyrir um 5,5% í hagvöxt á því ári. En hvað kemur síðan í ljós í ríkisreikningi í mars síðastliðnum? 8,9% hagvöxtur. Það munaði 3,5%. Við erum að reikna öll fjárlög og vinna alla okkar vinnu, alla umræðu og annað en þið sjáið að svona skekkjur eru m.a. það sem við erum að fást við akkúrat á þessum tímapunkti. Það var bara aukahagvöxtur upp á 3,5% á einu ári sem hvaða Evrópuland væri mjög sátt við á heilu ári, 8,9%, kínverskur hagvöxtur það árið.

Ég hlakka svo sannarlega til umræðunnar og til vinnu fjárlaganefndar við fjárlögin í haust en ég næ ekki að fara yfir meira efni hér.