155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:17]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langaði að spyrja hann út í orð hans um að það sé í reynd alltaf útkoman sem skipti máli. Það er ákveðið kjarnaatriði í þessari umræðu. Ég er einlæglega sammála því sem hann segir, aðgengi að gögnum, eða öllu heldur aðgengi að áreiðanlegum gögnum, er vandi fyrir okkur sem sitjum í fjárlaganefnd, hvernig við erum alltaf að vinna í blindflugi með tölur um hagvöxt, tölur um fólksfjölda á landinu, lykilbreytur sem hafa áhrif á útkomu. Mig langaði líka til að nefna við hann að það er talað um að hallinn sé í sjálfu sér ekki mikill en hallinn er viðvarandi og það stefnir í halla um níu ára tímabil. Deilir hv. þingmaður þeim áhyggjum með mér? Við heyrum stjórnarliða mikið tala um afkomubata en Samtök atvinnulífsins hafa talað um hann sem tekjufroðu. Þetta eru tekjur vegna verðbólgu sem þýðir að þetta eru tekjur sem eru ekki komnar til að vera. Þær hverfa um leið og verðbólga hættir að vera vandamál. Meiri hlutinn er mikið að byggja pólitíska orðræðu sína á því að tekjur séu iðulega betri en vænst hafi verið þegar við vitum að þetta eru ekki tekjur sem við getum treyst á og ættum raunverulega ekki að treysta á því að markmiðið er að losna við þessa verðbólgu. Er ekki hættulegt að tala með jákvæðum hætti um þennan afkomubata, eins og hann sé eitthvað sem hægt sé að reiða sig á?