fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er góð myndlíking að tala um blindflug, ég er ánægður með það. Þá þurfum við náttúrlega að hafa góðan radar og góðan aðflugsbúnað og annað til að klára þessi mál og þá eru gögnin náttúrlega mjög mikilvæg. Ég kom inn á þjóðhagsspána á sínum tíma, henni skeikaði alveg gríðarlega mikið fyrir árið 2022. Umræðan núna snýst svolítið mikið um akkúrat þetta ár og hvernig við gerðum hlutina. Ég vil líka benda á það að í umræðunni sem við áttum um fjármálaáætlun vorið 2020, þegar við vorum með Covid og vorum að fást við þetta í fjárlaganefnd og hér í þinginu og það var þverpólitísk samstaða og allir voru til, þá vildu sumir gera miklu meira. Það kom frá minni hlutanum, að menn vildu gera meira. Það hefði kannski ekki elst vel ef við hefðum gert enn meira. En við gerðum greinilega nóg. Það er slæmt að fá svona gríðarlegan hagvöxt, það var 20% hagvöxtur 2021, 2022 og 2023. Það er það sem við erum að eiga við hér, eftir að landsframleiðslan fór niður um 7% Covid-árið 2020. Við sjáum þetta ekki neins staðar annars staðar í allri Evrópu nánast. Það er kannski í fjárlögum Króatíu fyrir tímabilið 2019–2023, það er það land í Evrópu sem fer lengra í hagvextinum en við á þessu tímabili. Þetta er erfitt. Og ef við erum ekki með réttu hagtölurnar — eins og hv. þingmaður þekkir þá erum við að að nota nóvemberspá Hagstofunnar, þjóðhagsspána. Hún er undirstaðan í allri vinnu okkar í tengslum við fjárlögin. Ef hún gefur skakka mynd þá náttúrlega skekkist myndin töluvert mikið miðað við það sem maður hefði viljað sjá síðan þegar ríkisreikningur kemur fram svona einu og hálfu ári síðar, sem er niðurstaða þessarar vinnu. Oft hefur mér fundist umræðan hér síðan vera gríðarlega skökk miðað við það hvernig árið fór raunverulega.